Svei skítalikt

Ef einhver er orðin þreyttur á seinagangi ríkisstjórnarinnar þá eru það við fólkið í landinu, tel að stjórnin ætti að lýsa sig vanhæfa til að leysa þau verkefni sem þarft er, því það er hún svo sannarlega.
Allir taka allt svo persónulega og sitja fyrir framan alþjóð með sjálfsvorkunnar-svipinn, eins og við ætlum að vorkenna þeim eitthvað, Nei ekki aldeilis góðir hálsar, drullið ykkur bara upp úr aumingjaskapnum og framkvæmið eitthvað af viti, eða gefist bara upp þið eruð hvort eð er uppgjafaflokkar sem aldrei setja punktinn yfir i-ið og hana nú!

S menn eru orðnir þreyttir á VG, en eru þeir ekki stærri flokkur en VG svo þeir ættu að ráða við þá, skammist ykkar bara, það á að setjast niður og leysa vandamálin, en ekki að þrasa um þau endalaust, við höfum ekki tíma til að bíða eftir því að ykkur kjánunum takist að fá fjöður í ykkar hatt.

Maður fer nú alveg að springa.


mbl.is Biðla til Framsóknarmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Milla mín.

Ertu orðin þreytt ?

Já, við erum öll orðin þreytt á RANGLÆTINU og aðgerðarleysinu í þessari stjórn. svo sannarlega er ég þér sammála. 

Kær kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 8.2.2010 kl. 11:14

2 identicon

Segðu.Ekkert hefur verið gert fyrir fólkið í landinu.Við fórum úr öskunni í eldinn við að kosningarnar.Núna eru sérlegir ráðgjafar bankana orðnir aðstoðarmenn ráðherra.Spillingin hefur aukist um 100% og siðleysið líka.Skömm að þessu.

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 8.2.2010 kl. 11:18

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þórarinn minn, vissi að þú værir mér sammála, ég hef nú lítið úttalað mig um þessi mál, en halda þeir virkilega að þeir geti slegið ryki í augu okkar með því að ætla að taka inn Framsókn.

Mest er ég nú þreytt fyrir hönd fjölskyldna sem eiga í erfiðleikum, við sem eldri erum kunnum að láta okkur duga lítið.

Kær kveðja til þín vinur minn

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.2.2010 kl. 12:38

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þetta er ekki gott ástand Birna Dís mín, allt mun bara verða eins og áður, tóm spilling.
Kærkeikskveðjur Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.2.2010 kl. 12:40

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Milla mín, alveg hárrétt hjá þér, það ver að verða komið nóg af þessu ráðaleysi, spillingu og aðgerðarleysi. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.2.2010 kl. 08:57

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þessir menn sem núna eru við stjórn, skilja ekki að nú er komið nóg.
Knús til þín ljúfust

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.2.2010 kl. 09:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband