Hugleiðingar 111

Var að hugsa um að loka bara síðunni minni hér, en svo hætti ég við það þetta er mín síða og búin að vera það í mörg ár og hér á ég marga vini svo ég held henni til að setja inn hugleiðingarnar mínar.

Hugleiðingar eru til þess að losa sig við sárindi og efasemdir en einnig til að gleðjast og núorðið aðallega til að gleðjast með sjálfum mér fyrir það yndislega sem kemur upp á í lífinu mínu, en mér finnst afar merkilegt hvað margir eru neikvæðir og lesa ekki bjartsýnisblogg, neikvæðni er bara af hinu slæma fyrir okkur öll.

Sumarið hjá mér er búið að vera bjart og gleðilegt, fór heim til Húsavíkur í endann maj og var ferðin aðallega gerð til að aka englunum mínum norður, þær ætluðu að vinna á Fosshótelinu að Laugum í sumar en þær voru fyrst nokkra daga hjá frænkunum sínum á Húsavík síðan ók ég þeim að Laugum sem er eitt af undrum veraldar hvað fegurð snertir var síðan á Húsavík í mánuð hjá elsku ljósunum mínum og Millu minni, tengdasonurinn var víðs fjarri á rækju. Það var æðislegt að anda að sér orkunni frá sjónum og umhverfinu öllu, norðurþing er svo fallegt og magnað landssvæði að mér finnst ætíð ég vera komin í aðra vídd er ég fer að nálgast staðinn, nú ég fór suður eftir mánuð og var ýmislegt að stússast hé fyrir sunnan og við mæðgur áttum góðan tíma saman og með barnabörnunum mínum hér í Reykjanesbæ.

Nú það kom upp að Milla mín þurfti að hlaupa í skarðið sem fararstjóri með fimleikadeild Völsungs til Danaveldis og brunaði þá amma norður til að vera með ljósunum sínum það var yndislegur tími.
Ekki tók því að fara suður fyrr en englarnir mínir voru búnar að vinna, ætluðum við svo að aka suður 20/08 en var þá ekki sú gamla lögð inn á sjúkrahús deginum áður með garnalömun og englarnir mínir urðu að fljúga suður því nóg var hjá þeim að gera áður en þær færu til Japans 30/08. langaði til að segja frá þeirri stórkostlegu umönnun sem ég og aðrir fá á sjúkrahúsini á Húsavík, mér var ekki sleppt út fyrr en allt var orðið gott og ég farin að halda matnum niðri (lokksins er ég fékk að borða Tounge) mér fannst ég vera umlvafin kærleika og hef ég sagt það áður að ekki finnst betra sjúkrahús á landinu með fullri virðingu fyrir öllum öðrum, takk fyrir mig kæru vinir.

Nú ég ákvað að aka suður á fimmtudaginn var,InLove með leifi frá lækninum mínum, ferðin gekk með ágætum vel þó eigi hafi hún verið gallalaus, en suður komst ég og fæ að njóta nokkra daga með englunum mínum.

Sem sagt sumarið er búið að vera yndislegt og ég er svo glöð með það

 Kærleik til ykkar allra vinir mínir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Elsku Milla mín gott að þú hættir við að hætta að blogga.  Og gott að þú fékkst þinna meina bót elskuleg mín.  Æ þú er bara æðisleg í öllu þínu veldi

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.8.2012 kl. 21:27

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk elskan mín, það er einmitt vegna vina eins og þér ljúfust að ég hætti við að loka síðunni minni
Knús í Kúlu

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.8.2012 kl. 23:31

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gaman að heyra elskulegust

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.8.2012 kl. 23:40

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Gott að heyra að þetta gekk allt upp, þú ert nú alveg búin að fá nógu stóra akammt af veikindum að mínu mati, Farðu vel með þig mín kæra og ekki hætta alveg að skrifða, alltaf gott að lesa hjá þér. Risaknús

Ásdís Sigurðardóttir, 27.8.2012 kl. 17:06

5 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Þakka þér fyrir þetta fallega blogg og ég er fegin að þú lokaðir ekki síðunni þinni. Leiðinlegt að heyra að þú varst svona veik en gott að heyra að þér líður betur og að þú fékkst svona góða umönnun. Takk fyrir að gerast boggvinur og kanksi ég reyni að fara að blogga dálítið. Já bloggsíðan mín er líka síðan mín. Takk fyrir að deila þessum hugsunum með mér.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 8.9.2012 kl. 14:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband