það eru ófreskjur sem beita konur ofbeldi

Það væri kannski í lagi að setja í lög allt upp í 16 ára fangelsi fyrir að beita konur ofbeldi.

Konur og börn ná sér oftast ekki eftir að hafa alist upp í svona umhverfi, sem sagt kæra ríkisstjórn þið græðið á að setja þessar ófreskjur í fangelsi frekar en að borga konunum örorkulífeyrir og hafa börnin hjá sálfræðingum sem hjálpar ekki mikið.
Það er harkalegt að tala svona en þið skiljið ekkert nema að maður tali um að þið getið sparað.


Það verða skemmtileg jól hjá þessum fjölskyldum.
mbl.is Óvinnufærar vegna heimilisofbeldis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

það eru ófreskjur sem beita konur ofbeldi þessu er eg innilega sammala i gamla daga var þetta bara ekki mannlegt .en kvað kallar þu konur sem berja klípa og klóra mennina sina.eg hitti firrir nokkrum árum mann sem var i svoleiðis sambandi ,eg viðurkenni reyndar að mer fannst þetta svolítið fyndið eg hafði  aldrei trúað að menn gætu látið konu fara svona með sig,en þetta skeður nu samt.amma mín sagði alltaf að það væri ekki öll vitleysan eins

Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 2.11.2014 kl. 02:24

2 identicon

Mér finnst nú hollt að tala um þá sem beita ofbeldi séu ófreskjur. Í danskri rannsókn á 1000 börnum kom fram að 27% geranda eru KONUR. Ofbeldi kvenna á börn sín er falið vandamál þar rétt eins og hér á landi.

http://www.dr.dk/Nyheder/Indland/2014/10/30/125413.htm

Hvað finnst þér þá um þau börn sem beita önnur börn ofbeldi, eru þau ófreskjur Guðrún? Sitja ekki mörg börn eftir með sálrænan krankleika eftir slíka meðferð...ekki getur maður lesið annað.

Helga Dögg Sverrisdóttir (IP-tala skráð) 2.11.2014 kl. 09:14

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Í þessarri grein er bara verið að tala um ofbeldi gegn konum og börnin tvinnast inn í  þau ósköp.

Ég veit líka um konur sem beita karla ofbeldi einhver hlýtur að fara að gera úttekt eða BA ritgerð um þau mál.

Börnin sem beita önnur börn ofbeldi hafa oft veri til umtals, einelti og ofbeldi á meðal barna er óhafandi í okkar samfélagi ætla ég ekki að fara nánar út í það hér því ég var bara að vitna í greinina um karla sem beita konur ofbeldi, en langar aðeins til að segja mína skoðun á þeim málaflokki, það vantar samvinnu og að foreldrar viðurkenni að börn sín viðhafi einelti og ofbeldi, þá fyrst mun þetta vonandi verða í lagi.

Takk fyrir innlitið Helgi og Helga Dögg og njótið dagsins

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 2.11.2014 kl. 09:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband