Man ekki eftir öðru eins.

Þetta er bara ekki gott, ég var að rifja það upp ásamt syni mínum
sem hringdi í mig áðan,
við munum ekki eftir öðru eins  svona ört, eins og búið er að vera í haust
og byrjun vetrar.
Við bjuggum suður með sjó og hann býr þar enn,
Hann var í mörg ár í björgunarsveitinni Sigurvon, ég vann í flugstöðinni
svo við fylgdumst vel með veðri, en aldrei var þetta eins slæmt eins og
búið er að vera núna. vonandi fer þetta allt vel.
Guð veri með öllum þeim sem eru við hjálparstörf fyrir okkur.
Og kæru landsmenn verum heima hjá okkur í dag.


mbl.is Útköllum fer fjölgandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Segi eins og þú "verum heima" ég bið þess að allir björgunarmenn og þeir sem neyðast til að vera á ferli komi heilir heim.

                    Rudolph 

Ásdís Sigurðardóttir, 30.12.2007 kl. 15:44

2 Smámynd: Huld S. Ringsted

Það er byrjað að hvessa ansi duglega hérna hjá okkur, þó að vindáttin sé þannig að við komum ekki til með að finna svo mikið fyrir þessu hér eins og fyrir sunnan. En ég er búin að versla svo ég sit sem fastast heima við.

Huld S. Ringsted, 30.12.2007 kl. 15:57

3 Smámynd: Heidi Strand

Áramótaspánna: Heima er best.

Heidi Strand, 30.12.2007 kl. 19:55

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já stelpur heima er best. hann er farinn að bæta vel í hann hérna á Húsavíkinni er samt ekki búin að ná hámarki.
Snúllurnar mínar  komu  snemma í dag frá Laugum og verða fram yfir áramótin fara síðan heim að klára að koma sér fyrir.
                        Hafið það gott í óveðrinu.

                           Kveðjur Milla.
 

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 30.12.2007 kl. 20:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband