Fyrir svefninn.

,,Hérna kem ég með ósköp gott handa þér, Bjössi minn",
segir Guðrún og réttir skeið að syni sínum.
,, Nú, nú", sagði stráksi. ,, Enga tæpitungu. Ég heiti Björn
en ekki Bjössi, og ég veit, að þetta er hafragrautur,
og ég vil ekki sjá hann".


Sigurður málari kom kenndur heim klukkan tvö um nótt.
Kona hans var vakandi og segir stutt í spuna:
,, þú kemur seint heim; klukkan er orðin tvö".
,,Já hvað þýðir að ragast í því? Eins og klukkan væri
ekki orðin tvö, þó að ég hefði komið heim fyrr".

Kvennatískan.

                              Lengd er stýfð af lokkunum,
                              ljóma sneiddir mestum.
                              Sálin er í sokkunum
                              svona hjá þeim flestum.
                                               Jón Jónsson frá Hvoli.


                                                              Góða nóttSleeping


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Næturkvittið mitt. 

Ásdís Sigurðardóttir, 29.1.2008 kl. 21:58

2 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Ósköp hleypur tíminn hratt frá manni, komin nótt eina ferðina enn. Takk fyrir góða brandara og allt. Góða nótt Milla mín góða frænkakv.eva

Eva Benjamínsdóttir, 30.1.2008 kl. 02:50

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Eva mín tíminn flýgur
Ásdís sit hér og hlusta á kyrrðina á Húsavík þú kannast við það?

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 30.1.2008 kl. 07:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.