Fyrir svefninn.

Karl litli 5 ára gamall strákur, drap á dyr hjá
jafnöldru sinni, Klöru að nafni.
,, Þú mátt ekki koma inn", segir Klara.
,, Af hverju ekki ?" spyr drengurinn.
,, Að því að hún mamma segir, að kvennfólk
eigi ekki að láta karlmenn sjá sig á náttkjólnum",
segir Klara.
nokkru síðar kallar hún til Karls og segir:
,, Nú máttu koma inn, nú er ég komin úr náttkjólnum".


Gamall Húsgangur.

                 Ekki get ég gert að því,
                 gantaskapur og narrirí
                 fylgir mér um borg og bý;
                 börnin verða að hlæja að því.

Ástarþorsti.

                 Sæmd þó missti síðst og fyrst,
                 samt af list og vana
                 fast ég kyssti innst og yzt
                 ástarþyrstur hana.

                                             Góða nótt.Sleeping


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Góða nótt Milla mín og takk fyrir grínið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.1.2008 kl. 21:14

2 Smámynd: Erna

Ertu ekki örugglega í náttkjólnum Milla  

Erna, 30.1.2008 kl. 22:24

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Góða nótt Milla mín og takk fyrir kveðjuna í dag.

Ásdís Sigurðardóttir, 31.1.2008 kl. 01:17

4 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Krúttlegur brandari og lostafull bæn. Góða nótt Milla mín.

Eva Benjamínsdóttir, 31.1.2008 kl. 01:27

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Góðan daginn Ásthildur mín, hafðu það gott í dag.
Erna!!! sef ekki í náttkjól, kannski svona síðum bol sko er
einhver gistir hjá okkur, en svo get ég verið með tvö teppi vöðluð mér
til hlýinda, ég elska svona kuðli kuðl í kringum mig, en best er að sofa á nærunum.
                                       Kveðja Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 31.1.2008 kl. 08:18

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

góðan dag Hallgerður mín kæra, þú ert þá líklegast sofandi núna ef þú hefur verið nýkomin af miðilsfundi kl. 06:58. dísus eruð þið að alla nóttina? Andaglas nútímans já vissir þú það ekki?
Takk sömuleiðis Ásdís mín
Góðan daginn Eva frænka mín hafðu góðan dag.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 31.1.2008 kl. 08:25

7 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Takk Milla mín, alltaf svo hlýlegt að koma við hjá þér. Mér líst ekkert á frostið sem vofir yfir, ég þoli mjög illa kulda og verð ekki úti að leika mér. Hafðu það yndislegt í dag og alla daga.  kveðja eva frænka

Eva Benjamínsdóttir, 31.1.2008 kl. 12:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.