Fyrir svefninn.

Ég er bara að hugsa um að hafa þetta áfram myndasíðu.

100_7474.jpg

Eitt hornið í stofunni, dúkurinn er saumaður af mér og strauborðið
er afar gamalt frá ömmu minni. Lestin á gólfinu er einnig saumuð
af mér
.

100_7471_753738.jpg
Þetta eru englarnir mínir saumaðir af mér og eru harðangur og
klaustur. Verð að monta mig aðeins.


100_7518.jpg
Þessar myndir málaði Milla mín og gaf mér í fyrra.
Þær eru yndislegar.


100_7491.jpg

Mátti til með að setja þessa mynd inn, hann var svo hrifin af mér
þessi elsku jólasveinn að hann sat bara hjá mér í lengri tímaWhistling

Þessi mynd er tekin í kaffi hjá stéttarfélögunum um þar síðustu helgi.

100_7486.jpg

Ljósálfurinn minn að syngja einsöng. Hún spilaði einnig á þverflautu.


100_7487.jpg

Svo sést nú hér greinilega að litla ljósið mitt er hrædd við jólasveina
og því varð eigi breitt.

Sko sagði ykkur að ég mundi fá sýningaræði, en allt í lagi ekki hef ég
nú sýnt svo mikið, er það?

Góða nótt kæru vinir.HeartSleepingHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Listræn fjölskylda, það fer ekki á milli mála

Flott myndin af þér með Íslenska Jolla

Góða nótt Milla mín

Sigrún Jónsdóttir, 20.12.2008 kl. 20:21

2 identicon

Flottar myndir og hafið það ofsalega gott.

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 20.12.2008 kl. 20:50

3 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Ó yndislegthlýlegt og fallegtmér finnst alltaf svo gaman að skoða fallegar myndirknús og góða ljúfa nóttina

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 20.12.2008 kl. 21:13

4 Smámynd: M

Ji hvað er jólalegt og fallegt hjá þér Milla

Takk fyrir innlitið á bloggið mitt. Við fylgjumst betur með hvor annarri á facebookinu og svo verð ég líka að commenta hér eins og grár köttur

Gleðileg jól til þín og þinna.

M, 20.12.2008 kl. 21:16

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Já það er orðið jólalegt hjá þér Milla mín

Hólmdís Hjartardóttir, 20.12.2008 kl. 21:59

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk fyrir mig og það er örugglega orðið jólalegt hjá ykkur líka, og vitið að ég ákvað að hafa bara flest allt sem ég á í skrauti og hef ekki keypt nema eina grenigrein, Dóra mín gaf mér Túlípana í vasa og þá er ég alsæl.
Ljós til ykkar
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 20.12.2008 kl. 22:03

7 identicon

Það er aldeilis að það er orðið jólalegt hjá þér Milla mín það mætti halda að maður væri staddur í Jólahúsinu. Og jólasveina dúllan að dandalast utan í þér, var þetta nokkuð hann Gísli þinn? En flott mynd af ykkur. Ég sé það á litla ljósinu að henni hefur ekki þótt jólasveinarnir spennandi.

Góða nótt og sofðu rótt elskuleg.

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 20.12.2008 kl. 23:31

8 Smámynd: Sigríður B Svavarsdóttir

Rosalega er þetta fallegt kona góð.. Þú ert snillingur

Sigríður B Svavarsdóttir, 21.12.2008 kl. 00:13

9 Smámynd: Sólveig Þóra Jónsdóttir

Flottar myndir og sniðugt að nota strauborð inni í stofu, á eftir að stela þessari hugmynd.

Sólveig Þóra Jónsdóttir, 21.12.2008 kl. 02:03

10 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Góðan daginn elskurnar mínar og takk fyrir mig.

Sólveig Þóra það er sniðugt að nota svona gamla muni sem mublur,
Þetta strauborð er smíðað úr tré.

Sigga mín minntu mig á að sína þér handverkið mitt
næst er þú kemur.

Knús í krús Vallý mín


Nei þetta var ekki hann Gísli minn og litla ljósið var yfir sig hrædd
þessi elska.

Silla mín það mun örugglega ekki vanta gleðina í okkar jól.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 21.12.2008 kl. 08:06

11 Smámynd: Unnur R. H.

Falleg famelía

Unnur R. H., 21.12.2008 kl. 17:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband