Kossar knús og kveðjur.

Sendi öllum mínum bloggvinum og öðrum
þeim sem lesa bloggið mitt hugheilar óskir
um gleðilegt ár farsælt komandi ár og
innilegt þakklæti fyrir það liðna.
Verið bjartsýn og trúið á að þið fáið það sem
þið viljið, en athugið! það þarf að láta
vita hvað maður vill.

Ég til dæmis fer fram á betri heilsu og þess vegna fer ég fram
á þann kraft sem ég þarf til að efla heilsuna,
því ekkert kemur af sjálfum sér.

Ég bíð um frið, réttlæti, gott viðurværi til handa okkur öllum, sannleika,
tillitsemi, kærleika og að við kunnum að meta það sem við eigum,
það vantar oft mikið upp á að við munum hvað við eigum gott.

Horfið í kringum ykkur og nemið hvað er að gerast hjá öðrum í sambandi við
endalaus veikindi og vandamál sem fylgja þeim, lítið svo í eigin barm
og hugsið.

Guð veri með ykkur alla tíð.
Milla
.Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynja Dögg Ívarsdóttir

Sæl Milla, hafðu það sem best, óska þér þess að þú fáir betri heilsu á nýju ári, skemmtu þér vel í kvöld.

Gleðilegt nýtt ár með þökk fyrir það gamla,

Kv Brynja og Emma.

Brynja Dögg Ívarsdóttir, 31.12.2008 kl. 12:46

2 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Áramótakveðjur til ykkar allra með óskum um gott og gjöfult ár.

Ía Jóhannsdóttir, 31.12.2008 kl. 13:54

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Gleðilegt nýtt ár elsku Millan mín, og takk fyrir það gamla!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 31.12.2008 kl. 14:09

4 identicon

Kæra Milla, búið að vera einstaklega gefandi að kynnast þér á þessum vettvangi.  Kærleikurinn í kvöldsögunum þínum hafa yljað.  Óska þér og þínum gleðilegs árs og vonandi verður það gjöfult.  Kær vinakveðja úr Mosó í fæðingarbæinn við Skjálfandann.

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 31.12.2008 kl. 14:24

5 identicon

Gleðilegt nýtt ár elsku Milla mín og hjartans þakklæti fyrir ástúðina og kærleikann sem þú hefur gefið mér á líðandi ári.

Guð blessi þig og þína fjölskyldu.

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 31.12.2008 kl. 14:56

6 Smámynd: Sigríður B Svavarsdóttir

Gleðilegt ár Milla mín og kærar þakkir fyrir allt liðið.  Guð leiði þig til betri heilsu á nýju ári..Elskuleg.

Þess óskar þín vinkona

Sigríður B Svavarsdóttir, 31.12.2008 kl. 15:15

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Kæri bloggvinur, ég óska þér gleðilegs nýs árs og þakka fyrir skemmtileg kynni á árinu megi nýja árið færa þér hamingju og gleði. Kær kveðja  sérstakur kærleikur í bæinn allann

Ásdís Sigurðardóttir, 31.12.2008 kl. 16:51

8 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Takk takk og ljúfar kveðjur og takk fyrir yndisleg kynni á árinu sem er að líðaog megi nýja árið veita þér og fjölskyldu þinni ljúfar stundir .

Knús knús og ljúfur faðmur af yndislegri hlýju og ljúfa vináttu

Linda Linnet og Gunnar Óla

og dæturnar:):):):)

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 31.12.2008 kl. 17:40

9 identicon

Elsku Milla mín sömuleiðis hafðu það gott á nýju ári

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 31.12.2008 kl. 22:18

10 Smámynd: Huld S. Ringsted

Gleðilegt ár elsku Milla mín

Huld S. Ringsted, 1.1.2009 kl. 01:08

11 Smámynd: Anna Guðný

Gleðilegt ár Milla mín og megi allar þínar óskir rætast.

Anna Guðný , 1.1.2009 kl. 01:30

12 Smámynd: Heidi Strand

Gleðilegt nýtt ár Milla mín og takk fyrir góð samskipti á árinu þótt við höfum verið sammála eða ekki.

Heidi Strand, 1.1.2009 kl. 01:39

13 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Kæru vinir takk fyrir ykkar innlit og öll samskiptin á árinu sem er að líða.
Það er búið að gefa mér afar mikið að kynnast ykkur, sum hef ég aldrei séð önnur þekki ég og hef kynnst á árinu og ekki hefur vinskapurinn minkað við það.
Hafið það gott á nýju ári og kærar kveðjur
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 1.1.2009 kl. 11:53

14 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Lady Vallý mín sko neita að kalla þig annað góðan daginn elskan hér er allt orðið rólegt fallegt og engin fjandans lykt eins og í nótt.
Knús til þín ljúfust

Þín Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 1.1.2009 kl. 13:41

15 Smámynd: Rannveig Þorvaldsdóttir

Gleðilegt ár til þín og þinna Milla mín

Rannveig Þorvaldsdóttir, 1.1.2009 kl. 14:05

16 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Gleðilegt ár til þín og þinna Milla mín og takk fyrir ljúf og góð samskipti á liðnu ári

Sigrún Jónsdóttir, 1.1.2009 kl. 17:06

17 Smámynd: Anna Guðný

Var að senda á þig skilaboð Milla mín, fékkstu þau?

Anna Guðný , 1.1.2009 kl. 20:30

18 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

viltu senda mér þau aftur og einnig hvenær hún fer.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 1.1.2009 kl. 20:33

19 Smámynd: Hulla Dan

Gleðilegt ár til þín kæra bloggvinkona.
Takk fyrir skemmtilega og ljúfa pistla á síðasta ári.

Knús til þín.

Hulla Dan, 1.1.2009 kl. 22:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.