Hafa sinn eigin vilja.

Þetta eru auðvitað hestar með sinn eigin vilja, þeir
ætla sér greinilega að komast á þing blessaðir.
Hestar eru nefnilega hinir bestu stjórnendur, eins
og sögur herma af hestum sem hafa ratað heim með
húsbændur sína undir allskonar áhrifum.

Ráshestar, þeir mundu trúlega tilheyra
Samfylkingunni þó þar séu nú engir útrásarmenn
svo vitað sé, en hvað veit ég.
Kannski mundu útrásarhestarnir læknast er þeir
komast á þing, gera það ekki allir hver á sinn hátt.

Vinstri Grænum geta útrásarhestarnir nú eigi tilheyrt
þar eru eingöngu heimahaga-hestar, sem passa upp
á að vera alltaf á sínum stað og breyta aldrei til, fara
ekki einu sinni til fjalla til að eta fjallagrös þó betri séu.
Þar kemur til afturhalds- áráttan.
Vera bara í heimahaganum.

En blessaðir hestarnir vita ekki að það kostar peninga
að afla peninga.
Ekki orð meira um blessaða hestana.

Eigið góðan dag
Milla.


mbl.is Hestar á lausagangi í borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Ólafsson

Ætli Löggan hafi notað piparúða við handtökuhestana þeir eru hættir að sleppa brúsanum af því og notað við öll verk hjá þeim í dag.

Guðjón Ólafsson, 29.1.2009 kl. 08:13

2 Smámynd: Auður Proppé

Ég myndi frekar kjósa hestana, held þeir hefðu meira vit fyrir mannfólkinu.

Ljós í daginn þinn Milla mín

Auður Proppé, 29.1.2009 kl. 08:24

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Nei veistu það Gutti að þeir mundu aldrei nota piparúða á þá því augu
hesta eru meira metinn en manna og svo eru þeir eigi hræddir við þá.
Kveðja Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.1.2009 kl. 08:43

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já það yrði bara hið glæsilegasta þing hugsaðu þér með gæðinganna sitjandi á þessum fínu stólum alþingis
Knús í daginn þinn
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.1.2009 kl. 08:45

5 identicon

ég er hrædd við hesta. það var einn hestur heima í Eyjum og hann hljóp á eftir mér. komst seinna að því að það var einstigi blessuð skepnan komst ekkert annað.

Hallgerður Pétursdóttir (IP-tala skráð) 29.1.2009 kl. 11:16

6 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Flottar samlíkingar hjá þér.

Helga Magnúsdóttir, 29.1.2009 kl. 12:52

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahahaha góð

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 29.1.2009 kl. 13:47

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Hallgerður mín engin getur gert við hræðslunni, en hestar eru meinleysis-skepnur oftast.
Knús
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.1.2009 kl. 13:58

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Helga ég gat ekki stillt mig.
Knús kveðjur
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.1.2009 kl. 14:01

10 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Knús vestur til þín Ásthildur mín
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.1.2009 kl. 14:02

11 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég er sömuleiðis hædd við hesta og ég veit ekki hvers vegna. Kær kveðja.

Kristín Katla Árnadóttir, 29.1.2009 kl. 14:24

12 Smámynd: Erna Friðriksdóttir

Ég er skíthrædd við hesta,  þeir geta nú sparkað allhressilega í fólk        ............ en er ánægð með að þeir séu komnir til að mótmæla !!!!  Vona að þeir hafi ekki fengið kylfu í hausinn     ja eða táragas

Erna Friðriksdóttir, 29.1.2009 kl. 17:53

13 Smámynd: Erna Sif Gunnarsdóttir

Flott hjá þér Milla mín

Knús og kossar

Erna Sif Gunnarsdóttir, 29.1.2009 kl. 17:58

14 identicon

Ég gat nú ekki annað en hlegið að þessari samlíkingu hjá þér með hestana. Sé hann vin okkar með stjörnurnar í augunum alveg í þessu hlutverki heimahestanna. En hann segir nú bara já og amen við öllu þessa dagana. Þannig að sjáðu bara hvað ráshestarnir og heimahaga-hestarnir geta brallað saman.

Ljós inn í kvöldið.

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 29.1.2009 kl. 19:09

15 identicon

Ef þú spyrð mig þá er margurinn tréhestur/hryssa sem þarna býðst. Með fullri virðingu.  En textinn þinn var góður að venju.

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 29.1.2009 kl. 19:13

16 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Gott hjá þér Erna mín þó þú sért hrædd við hesta.
Knús
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.1.2009 kl. 20:29

17 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Erna ferna ertu sem sagt búin að láta verða að þessu?

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.1.2009 kl. 20:30

18 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já er það ekki Jónína? ég nefnilega einnig. hann gefur bara allt eftir sem hann var búin að tala niður í mörg ár, allt fyrir stól í 2 mánuði.
Þeir geta nú ýmislegt hestarnir hvort sem þeir heita heimahestar eða ráshestar
Knús
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.1.2009 kl. 20:33

19 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk Einar, heldur þú ekki að tréhesturinn ráði vel við þetta, nei bara spurði.
Knús
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.1.2009 kl. 20:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband