Fyrir svefninn.

Svona dagar eru náttúrlega ekki í lagi, sko ég fór að sofa
á skikkanlegum tíma í gærkveldi og svaf til 8 í morgunn,
læddist framúr svo þessi sem vakti í alla nótt vaknaði ekki
það slapp til, fór og fékk mér morgunmat og svo í tölvuna
ekkert að gerast, en sá úrslitin og var bara nokkuð sátt.

Það sem mér finnst er að við þurfum að taka upp léttari
húmor á það sem við köllum vandamál, ef við ætlum að halda
svona áfram eins og við erum búin að gera undanfarna mán.
þá verðum við útbrunnin eftir smá tíma.

Við breytum ekki því sem er að gerast, ekkert að gera með þá
gjörninga sem koma til með að verða sýnilegir næstu mánuði
ef við erum ekki ánægð þá gerum við allt vita vitlaust, en gefum
fólki tíma til að anda aðeins.

Jæja var ég ekki að tala um svona daga, jú ég sko sofnaði eftir
matinn og svaf til 16 er þetta eðlilegt?
Milla hringdi síðan og ætluðu þau út að borða og komu ljósin mín
þá hingað á meðan þegar þau komu að sækja þær þá var hellt á kaffi
og spjallað smá stund, Ingimar er svo að fara suður í fyrramálið.

Góða nótt kæru landsmennHeartSleepingHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Huld S. Ringsted

Huld S. Ringsted, 26.4.2009 kl. 23:43

2 Smámynd: Ásgerður

Góðan daginn Milla, og já það þyðir ekkert að vera fúll eða reiður, lífið heldur áfram og þá er bara um að gera að njóta þess

Knús á þig frænka

Ásgerður , 27.4.2009 kl. 07:31

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Knús til þín Huld mín sjáumst um næstu helgi hressar og kátar
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 27.4.2009 kl. 07:33

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ásgerður frænka mín við höfum nú um annað að hugsa heldur en að sótast út í pótitíkina.
Kærleik til þín
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 27.4.2009 kl. 07:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband