Gleðileg jól kæru vinir.

Jæja elskurnar nú ætla ég bara í bloggfrí, hef svo margt skemmtilegt að gera þessa daganna að ég mun bara sinna mér og mínum, sem sagt að vera svolítið sjálfselsk.

Fórum á Akureyri í gær, ég var að versla fyrir jólin, var sko ekki byrjuð, en að vanda fékk ég góða hjálp, síðan fórum við út að borða hittum svo í kaffi nokkrar góðar vinkonur, bara yndislegt.

Í kvöld erum við öll að fara að Ýdölum til að hlusta á Frostrósir, hlakka svo til.

christmas-tree-inside-the-house.jpg

Svona ættu kannski jólin að líta út hjá öllu fólki, en það er bara
eigi svo, en við eigum hvort annað og í hjarta okkar býr kærleikurinn,
friðurinn og ljósið.
Notum það sem í hjarta okkar býr.

Gleðileg jól gott og farsælt komandi ár
með hjartans þökk fyrir það gamla.

Milla
Heart



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jæja, mín bara að gerast sjálfselsk?!

Nei grín, elsku Milla

Hafðu það bara sem best í bloggfríinu og líði þér sem yndislegast yfir hátíðarnar og megi nýja árið verða þér farsælt

Og hjartans þakkir fyrir árið sem er að líða

Kær kveðja

Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 15.12.2010 kl. 18:19

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk góða bloggvinkona og sömuleiðis til þín og þinna

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 16.12.2010 kl. 00:55

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gleðileg Jól til þín líka elskuleg, og hafðu það virkilega gott yfir hátíðina. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.12.2010 kl. 11:40

4 identicon

Gleðileg jól Milla mín og gott frí

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 16.12.2010 kl. 12:14

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Elsku Milla mín, gleðileg jól og njóttu hátíðarinnar vel með þínu fólki. Kærleikskveðja frá okkur hjónum.

Ásdís Sigurðardóttir, 16.12.2010 kl. 14:53

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ásthildur mín hafðu það gott sömuleiðis og njóttu jólana sem best þú getur, mundu ljúfust að þú átt svo mikið bæði til að gleðjast yfir og gefa okkur hinum
Knús í kúlu

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 16.12.2010 kl. 22:27

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Birna Dís mín hafðu það gott um jólin og alla aðra daga líka
Njótið jólanna og hvers annars

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 16.12.2010 kl. 22:29

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk elsku Ásdís mín og ég sendi ykkur Ómari kærleikskveðjur og njótið jólanna saman

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 16.12.2010 kl. 22:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.