Þörfin er komin aftur

Ég meina sko þörfin fyrir að tala við sjálfan mig, tel mig vera að gera það með því að blogga hér, en svo mega auðvitað allir sem áhuga hafa segja sitt álit.

Held að ég hafi komist endanlega að því í sumar hvað ég hef oft í gegnum árin dottið í þann fúla Pitt að  tala eigi rétt við fólk, þá meina ég að bera virðingu fyrir skoðunum fólks leifa því að tjá sig án þess að grípa fram í með jafnvel mínum skoðunum sem eru ekki réttar fyrir þann sem ég er að tala eða bara alls ekki réttar. Stundum hefur mér þetta tengjast skapferli mínu þennan og hinn daginn. Stundum er það nú þannig að þeir sem vilja mér best og reyna að segja mér til fá yfir sig ómældar gusur og svo endar þetta á því að fólk lúpar fyrir mér, en ég hætti ekki og hvað er þetta þá kallað, jú einelti.

Já einelti, skondið held að ég hafi aldrei orðið fyrir því er víst of frek og stjórnsöm eða hvað er þetta kallað allt saman, kannski bara eftir hvers og eins höfði, bara veit það ekki.

Margir segja að ég sé norn,(bara vel meint), en mér finnst það heiður að vera kölluð norn því ég held að ég sé bara góða nornin vildi samt óska að ég gæti galdrað, JERIMÍAS hugsið ykkur hvað ég gæti áorkað, T.d frið á jörð, mat fyrir alla, vinnu fyrir alla, að fólk hætti að hakka í sig allt sem gerist í þjóðfélaginu, allir fari að hugsa jákvætt, allir skólar fengu nægilega peninga, endalaust gæti ég talið upp, en ekki getur það verið svo gott, enda væri það nokkuð gott að fá allt upp í hendurnar, nei og aftur nei við verðum að vinna fyrir því sem við fáum.

Jæja gott fólk breytingarnar eru gengnar í garð hjá mér, mun hafa aðsetur hjá Dóru minni og englunum mínu að Ásbrún Reykjanesbæ í vetur, hef hugsað mér að ákveða hvar ég muni búa í ellinni, þarf nefnilega að huga að því vegna biðlistans sem er inn í íbúðir fyrir heldri borgara þessa lands. Fæ tækifæri til að bera saman staði eigi ætla ég að nefna neina því lífið er allt breytingum háð, mun allavega gera það sem er best fyrir mig.

Það var ekki auðvelt að kveðja ljósin mín fyrir norðan, en svo er líka sanngjart að ég skipti mér niður hér í Njarðvík á ég fjögur barnabörn tvo prinsa og tvær prinssessur, þau eru yndisleg, svo á ég tvö í Garðabæ. Ég er afar rík kona

Kærleik til ykkar allra



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Gaman að sjá þig hér á ferð Milla mín, gott að allt gengur vel. kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 11.9.2011 kl. 17:23

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk sömuleiðis Ásdís mín, vonandi fer heilsan að koma hjá mér

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 11.9.2011 kl. 19:15

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Vona það svo innilega þín vegna Milla mín.

Ásdís Sigurðardóttir, 11.9.2011 kl. 19:46

4 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Alltaf gaman að fylgjast með þér og þínum Milla mín, það er svo mikill kærleikur i kringum þig.

Jóhanna Magnúsdóttir, 12.9.2011 kl. 17:24

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk sömuleiðis Jóhanna mín

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 13.9.2011 kl. 12:29

6 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.9.2011 kl. 09:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.