Fór á Kabbalah fyrirlestur í gær

Það var yndislegt, fræðandi og góð áminning inn í þá flóru sem ég lifi eftir, set inn nokkrar myndir fólkinu mínu og vinum til skemmtunar.

Hermann sem opnaði Kabbalah setrið á Íslandi frétti af að Gudni væri
að koma til landsins, en Gudni býr í Japan, þá bað hann Gudna að halda
einn fyrirlestur.

331495_2385674314147_1019439344_32658909_1749267952_o.jpg

Ljósið

337392_2385674474151_1019439344_32658910_168383120_o.jpg

Gudni bróðir og Hermann sem opnaði Kabbalah setrið á Íslandi

340291_2385680314297_1019439344_32658927_134675375_o.jpg

Gudni að segja okkur aðeins frá lífsins tré

337740_2385675154168_1019439344_32658913_1146927340_o.jpg

Anna Dögg dóttir Guðna, Guðrún Emilía, Sigrún Lea og Guðni

321775_2385686074441_1019439344_32658944_1225164771_o.jpg

Hrönn frænka, Ásta frænka situr við hliðina á henni, Inga og Ingó

331693_2385684194394_1019439344_32658939_1058938274_o.jpg

Allir vel hlustandi, en það var líka hlegið, því maður á að lifa í gleðinni

290273_2385688634505_1019439344_32658951_866789320_o.jpg

Ég, Ingó og Guðni

323845_2385690954563_1019439344_32658956_738881270_o.jpg

Neró fékk að vera með hann var afar glaður með athyglina
sem hann fékk

327852_2385681194319_1019439344_32658931_1498213319_o.jpg

Hann leiddi okkur í hugleiðslu við hina hljóðu tjörn, magnað.

324250_2385688154493_1019439344_32658950_2128979989_o.jpg

Erum við ekki myndarleg systkinin

333578_2385681634330_1019439344_32658933_1280206279_o.jpg

Sko maður er í essinu sínu, sést í Ingu mína þarna á milli

329125_2385690274546_1019439344_32658955_312471434_o.jpg

Öll svo glöð, ég er að segja að ég þoli ekki Homer Simsson, en
auðvitað er hlegið að húmorsleysinu í mér.

327684_2191490144668_1169576196_32322812_1538202117_o.jpg

Nú að því að þau Jano og Ume fengu ekki að koma með verð
ég að setja inn mynd af þeim, svona eru þau ætíð kúrandi saman

325696_2385689634530_1019439344_32658954_245488486_o.jpg


Það er alltaf svona gaman hjá okkur.337077_2385674754158_1019439344_32658911_888611271_o.jpg

Eilífðin, hafið þið spurt ykkur sjálf: "Hver er ég"

Takk fyrir mig
InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Takk fyrir þetta Milla mín, jú þú ert svakalega flott kona.  Innra sem ytra

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.11.2011 kl. 13:47

2 identicon

SPOILER: Kabbalah er púra steypa.

Tell you what, farðu frekar í Harry Potter klúbb með börnunum þínum, það er mun skynsamlegra og skemmtilegra fyrir alla.

DoctorE (IP-tala skráð) 10.11.2011 kl. 13:50

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sömuleiðis ert  þú elskuleg

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 10.11.2011 kl. 13:59

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

DoktorE??????????????? Hvað á maður að gera við þig, veistu ég held að þú hafir rosa gaman af að reyna að espa fólk upp, en ljúflingurinn minn það tekst ekki með mig.

Farðu nú og lestu fræðin, þarft reyndar að fara langt aftur í tímann, en það er auðvelt  þú bara googlar.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 10.11.2011 kl. 14:02

5 identicon

Ég er ekki að reyna að æsa neinn upp, ég er bara að segja hlutina eins og þeir eru.

Þú, ég og allir aðrir erum partur af lífríki jarðar, þegar við deyjum þá erum við dauð; Game over, sama þó þú farir í Kabbalah, kristni, islam, hvað sem þú gerir þá mun það ekki hafa nein áhrif á endanlega niðurstöðu; Við erum dauð þegar við erum dauð, við erum ein í messunni.

Öll trúarbrögð eru manngerð, gerð sérstaklega til að véla menn inn í rugl og bull, hafa af þeim peninga, gera þá viljuga í að deyja í stríðum.

Ég veit þetta, þú veist þetta, það vita þetta allir; Sumir bara halleljúgast yfir rödd skynseminnar sem hrópar: HALLÓ þetta er bara hjátrú, guð er snuð...

DoctorE (IP-tala skráð) 10.11.2011 kl. 14:52

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk fyrir að koma með þína skoðun DoktorE, em ég veit mitt og þú veist þitt, minn sannleikur er minn og þinn er þinn, þurfum ekki að vera samála.
Það er nú annars bara gaman að spjalla við þig

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 10.11.2011 kl. 18:05

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég sé Milla mín að þú hefur jafn gaman af DoctorE eins og ég, mér finnst ómissandi að fá innleggin hans.  Takk fyrir allar þessar skemmtilegu myndir en á Kabbalah fyrirlestur færi ég ekki,( né aðra fyrirlestra um trú) finnst mig ekki vanta neitt. Læt mitt duga mér. Góða helgi

Ásdís Sigurðardóttir, 11.11.2011 kl. 12:09

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ásdís mín þú þarft ekki að tala eða vera trúuð til að lifa eftir Kabbalah, fyrirlesturinn hljóðaði upp á hvernig þú getur lifað farsælu lífi fyrir þig, engin gerir það fyrir þig, en of langt mál að útskýra það hér.
En hefur þú hugleitt hvar þú ert?

Knús til þín ljúfust.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 11.11.2011 kl. 13:26

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já ég hef sko gaman að lesa DoktorE, hann er snjall mundi vilja hitta hann auglitis til auglitis

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 11.11.2011 kl. 13:27

10 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Já Milla mín, ég hugsa oft um hvar ég er stödd og hversvegna og um lífið almennt, hugsa stundum of mikið meira að segja, en ég held að það sé bara gott, allavega líður mér vel í sál og sinni og það er fyrir mestu.  ég segi eins og þú að ég vildi gjarnan hitta DoctorE og spjalla við hann.

Ásdís Sigurðardóttir, 11.11.2011 kl. 14:05

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ætli hann sé ekki bara Kalli biskup sjálfur að fá útrás

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.11.2011 kl. 17:49

12 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Þetta er áhugavert ..

Lífsins tré finnst eiginlega í öllum trúarbrögðum, - askur Yggdrasils er t.d. líka lífsins tré og auðvitað var eitt stykki í aldingarðinum Eden! ..  

Þú ert rosa flott á myndunum! - 

Jóhanna Magnúsdóttir, 11.11.2011 kl. 18:01

13 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Auðvitað hugsar þú um það hver þú ert, evaðist aldrei um það ljúfust mín, þér líður vel og er manni líður vel trúir maður á kærleikann

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 11.11.2011 kl. 21:54

14 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Gæti verið Ásthildur mín, allir þurfa að fá útrás.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 11.11.2011 kl. 21:56

15 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Kabbalah er einnig til í mörgum trúarbrögðum og já Yggdrasil hefur einnig lífsins tré og að sjálfsögðu Aldingarðurinn Eden, enda er talað um hann í Kabbalah

Mér fannst afar fróðlegt og gaman að fara á þennan fyrirlestur sérlega að því að bróðir minn var beðin um að flytja hann og miðla af sínum viskubrunni, en ég hef löngum reynt að lifa eftir þessum vísdómi.

Takk Jóhanna mín

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 11.11.2011 kl. 22:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband