Hvað ætli þeir græði á henni þessari

Elskurnar mínar þessi pilla er eins og allar aðrar megrunarpillur, sem sagt bull og vitleysa, virkar kannski til að byrja með, en bara ef þú borðar hollan mat og hreyfir þig MIKIÐ.

Ef fólk getur borðað hollan mat, hlaupið og hamast í ræktinni af hverju þá ekki án megrunarlyfja, sem að er vita mál að eru með svo og svo miklar aukaverkanir að stórhættulegar geta verið, elskurnar, ég var í þessum pakka að hlaupa eftir öllu svona auglýsingaskrumi, sum þeirra lyfja sem ég tók inn með mikilli áfergju og rétt eins og þær væru mitt eina sanna átrúnaðargoð er búið að banna og taka af markaði, enda ekki hægt annað því hálfur heimurinn var upp um alla veggi þrífandi og púsandi með eyrnapinnum eins og ein í aðþrengdum eiginkonum í gærkveldi og eða sofandi því þetta var svo mikið eitur, haldið þið að maður hafi hugsað út í það eða trúað nokkrum manni sem vogaði sér að segja eitthvað slíkt, Ó NEI elskurnar, svo vitlaus var maður ekki.

Ég var meira að segja svo heimsk að ég lét segja mér að garnastytting væri málið og hún væri alveg hættulaus, dreif mig að sjálfsögðu í eina slíka, hún var jú ekkert mál, missti heilsuna, léttist um 65 kg á einu ári, varð litlaus og ljót af vítamínskorti þó ég væri að taka öll vitamín sem þeir sögðu mér að taka ásamt öllum sprautunum sem ég fékk, 6 árum síðar var ég tengd aftur, fékk heilsuna og nýtt líf, en hvað var allt þetta búið að gera líkama mínum hef oft spurt mig að  því.

Elskurnar, hlustið á líkama ykkar, fáið góð ráð hjá næringafræðingum og öllu því góða fólki sem ykkur er boðið upp á í heilsubúðum okkar, það virkar betur en allar megrunarpillur.

Elskurnar njótið lífsins og elskið ykkur eins og þið eruð.


mbl.is Megrunartöflur Jennifer Aniston
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Aljgörlega sammála þér Milla mín, þetta er bara gróðabrall.

Ásdís Sigurðardóttir, 30.12.2011 kl. 11:24

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er miklu betra megrunarráð að drekka ískalt vatn, og borða harðsoðin egg.  Annars er ég bara svo skrýtin að ég gef lítið fyrir svona megrunar þetta og hitt.  Elska mig bara ein og ég er.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.12.2011 kl. 13:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband