Hugleiðing 1V

Ein sit ég og sauma #"$%&&&&&/ nei nei ég meina hugsa það er svo gott að vera ein með sjálfum sér finna friðin með kisunum mínum sem kúra í ömmu bóli það er svo heitt og gott, nú vetrarverkin eru komin á fullt hjá öllum, skóli, ræktin, íþróttirnar og að sjálfsögðu föndrið hjá okkur mæðgum mikið finnst öllum gott er það kemst regla á alla hluti eftir sumarið þó allir séu líka fegnir er skóla líkur, en þá er það fótboltinn og bara allt mögulegt og auðvitað er þetta svo skemmtilegt að engin vill missa af neinu.

Hér á bæ er ósköp rólegt englarnir mínir farnar til Japans og gera það bara gott þarna úti í hinum stóra heimi sem þeim finnst ekkert stór, en ég hef  yndislegu barnabörnin mín fjögur hér á Kópa og við Dóra erum svo heppnar að fá að hafa þau á stundum og þá er fjör í bæ nú svo tala ég nú við ljósin mín á Húsavík, fæ fréttir af hvernig þeim gengur og svoleiðis, ég get allavega ekki kvartað.

Fyrirsagnir blaðanna fara stundum fyrir brjóstið á mér eins og þessi:
" Þóra Arnórsdóttir með börnin og manninn á frumsýningu"
Væri ekki skemmtilegra að segja:
"Þóra og Svavar með börnin á frumsýningu" Nei ég bara spyr.

Svo þessi sem ég heyri oft á einni sjónvarpsstöðinni:
" Vertu heima með elskunni þinni í kvöld hún á það skilið"
Sko auðvitað eigum við konur allt gott skilið en mér finnst þessi
auglýsing asnaleg, karlar eiga líka allt gott skilið.

249631_474313415933372_88930664_n.jpg


















Englarnir mínir með nýjum vinkonum

253072_3673680367880_895993788_n_1172726.jpg

Auðvitað var farið á MC Donalds

297727_3686718773832_1641197675_n.jpg

Fallegu englarnir mínir

402734_279045095529460_677938151_n.jpg

Flottar þessar vinkonur

488271_3675695298252_427632079_n.jpg

577008_3683792340673_217137937_n.jpg

Nammi namm

644073_514935328520719_762505976_n.jpg

Hópur af skólafélögum, það væri nú munur ef við gætum verið í
stuttbuxum en við búum víst á Íslandi

Kærleik og frið til ykkar allra


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Flott eins og alltaf Milla mín, talandi um auglýsingar hvað finnst þér um það að allir sjái hverjir drekka orkudrykk, man ekki nafnið á honum.  Hvernig sér fólk að allir drekka þennan drykk, er það vegna þess að fólk verður yfirspennt og æst eða.......?  Skil ekki svona og hvað kemur mér það við hvort Þóra og Svavar fara í leikhús með börnin?

Annars gott að vita að þú ert að njóta þín dúllan mín

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.9.2012 kl. 11:21

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hæ skvís. Ég sá einmitt þessa mynd af Þóru, hún sýndi mér bara yfirspennta dóttir sem höndlar illa áreiti fjölmiðla og lítinn dreng sem vildi ekkert frekar en að vera í friði fyrir þessum ljósmyndurum, ég vorkenndi börnunum. Þær eru aldeilis að upplifa mikið ömmustelpurnar þínar, allar góðar óskir mínar fylgja þeim. Gott að þér líður vel Milla mín, kær kveðja frá okkur hjónum. :)

Ásdís Sigurðardóttir, 17.9.2012 kl. 13:31

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þetta með orkudrykkina Ásthildur mín, þeir eru stórhættulegir (margir) og ættu foreldrar að kynna þetta vel fyrir börnunum sínum, vatnið er best.
Ég var að meina með Þóru að í auglýsingunni er það hún sem fer með manninn og börnin í leikhús en ekki þau hjón saman asnalega orðuð frétt
Já ég er öll að koma til þó ekki búin að sleppa hækjunni, en það kemur að því
Knús í Kúlu

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.9.2012 kl. 15:56

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já þær eru sko að upplifa heilmikið englarnir mínir þær verða í eitt ár þarna í Háskóla koma svo heim og klára hér, þær eru búnar að hafa góðan tíma til að kynnast skólanum og krökkunum þær fóru út 30/08 og byrja í skólanum 19/09
Það er svo yndislegt er krökkunum gengur svona vel
Kveðja til ykkar elskurnar

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.9.2012 kl. 16:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband