Ekkert réttlæti

Að sjálfsögðu ekki  því þeir sem ráða vilja ráða meiru og fá meira vald hvað sem það kostar og þá er ég ekki bara að meina slátrunina í Sýrlandi, hún er víðar og í mörgum skilningi versta við þetta er að alþjóðasamfélagið tekur þátt í þessu öll með afskiptaleysi sínu, finnst alheiminum bara allt í lagi að drepa fólk eins og um kanínur væri að ræða, held það bara, allavega gerir samfélagið ekki neitt nema að kjafta um allan ósómann sem viðhefstWhistlingþað er svo gaman við eldhúsborðið.

Tökum barnanýð sem fram hefur farið í tuga ára hjá skátum í Ameríku, auðvitað opnaðist það mál vegna þess að einhverjum varð ljóst að það er í lagi að segja frá og haldiði að nokkur staður á þessari jörð sé undanskilin frá þessum viðbjóði Nei.W00t það hefur nefnilega lítið sem ekkert verið gert í svona málum.

Hugsið ykkur hvað allir eru búnir að vera vondir við Fyrrverandi forseta Frakklands, það er komið í ljós eftir hans sögn að hann er sárasaklaus af því að hafa átt kynmök við stúlku undir lögaldri, alþjóðasamfélagið verður víst að byðja hann fyrirgefningar eða hvað haldið þið, kallast það ekki réttlætiDevil

 kennari úti í heimi klippti hárið af tveim stúlkum sem neituðu að bera slæðu að sið Múslima, hræðilegur glæpur; " kennarinn var að sjálfsögðu í sínum fulla rétti"Angry


Flestum er sama hvað verður um allt það fólk sem verður fyrir óréttlæti, gleyma því strax, en hugsið ykkur hvað væri hægt að gera með samstöðu alheimsins, hætta allri græðgi, valdabaráttu og ómennsku í alla staði.

Svo eru það jólin sem eru komin í helstu verslanir og landinn fer á flug, allt er svo fallegt og freistandi, en allmarga vantar peninga til að kaupa alla þessa dýrð.

Góða helgi til ykkar allra
Heart


mbl.is 23 börn létust í sprengjuárásum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Góða helgi til þín líka Milla mín Sammála þér þetta er svakalegt sem er að gerast, ég reyni að slökkva á útvarpinu þegar þessar fréttir berast, því ég fer alveg í rusl.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 19.10.2012 kl. 11:37

2 identicon

ekki að það skipti miklu máli en Berlusconi er fyrrum forsetisráðherra Ítalíu :)

Viktoría (IP-tala skráð) 19.10.2012 kl. 13:35

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk Viktoría mín veit þetta alveg var bara eitthvað annars hugar
Góða helgi til þín

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 20.10.2012 kl. 08:13

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ásthildur mín við erum alveg sammála þessu
Knús í Kúlu

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 20.10.2012 kl. 08:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband