Hláturjóga.

Já ég fór á námskeið í hláturjóga í gær, það var alveg ótrúlega fróðlegt og skemmtilegt.Þetta ættu allir að  yðka, gott fyrir eldri borgara, öryrkja, hjartasjúkklinga, sálartetrið okkar og bara fyrir alla konur og karla. Ég er afar léttlynd kona og hefði aldrei dottið í hug að fara á svona námskeið, en ég sé ekki eftir þvi, og annað, þar sem ég er hjartasjúkklingur, hélt ég að ég gæti ekki farið í leikina sem fylgja þessu, en viti menn það gekk bara vel. Ég veit um að bæjarfélög, fyrirtæki og félagasamtök hafa boðið fólkinu sinu upp á svona námskeið. Í kjölfarið hefur sprottið upp hláturgangan. Í Reykjavik var t. d. gengið frá þvottalaugunum í laugardal inn allan grasagarðinn og hlegið og leikið sér á túni sem þar er. Þetta var fjölmenn ganga að mér var tjáð og afar skemmtileg. Ég skora á alla að fara á svona námskeið.Grin

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rannveig Þorvaldsdóttir

Þú þessi glaðlynda kona á hláturnámskeiði!! En flott hjá þér að skella þér. Maður getur auðvitað alltaf lært eitthvað nýtt. Það er aldrei of mikið hlegið!

Kveðja að westan;-)

Rannveig Þorvaldsdóttir, 25.3.2007 kl. 22:33

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Hæ Rannveig min þú ættir bara að vita hvað þetta er gaman sérstaklega fyrir svona villínga eis og mig. Takk fyrir athugasemdina. Gott að fá jákvætt komment kærar kveðjur  frá gamla settinu á hólnum.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.3.2007 kl. 15:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband