Mannvonska, heimska eða hvað

Ætla að segja frá atviki sem ég lennti í, svoleiðis var að við mæðgur þurftum að láta hundinn okkar fara á annað tilverustig, morguninn sem ég var að fara til dóttur minnar,( ætluðum að borða saman morgunmat fara svo með krúttið okkar á Dýraspítalann)hitti ég kunningjakonu í ganginum og sagði henni hvað ég væri að fara að gera nú einhverjir aðrir voru þarna og  var ég ekkert að  huga að því.

Dagurinn var bæði sorglegur og fallegur, fengum að setja hann í gröf hjá vinafólki okkar sem býr fyrir utan Sandgerði.

Daginn eftir átti ég að fara í þjálfun en hún var þá veik
, ákvað að fara í matsalinn og fá mér saladbar ( borða samt ætíð heima hjá mér ) ég labba inn í salinn og þá gellur í karlmanni einum sem sat þarna, ertu búin að slátra hundinum þínum, ég sneri mér að honum og spurði hvort hann væri að tala við mig þá endurtók hann spurninguna ég urlaðist af reiði og jós vel völdum orðum yfir þetta illmenni labbaði síðan í burt og fór að hágráta, við vorum búin að eiga Neró okkar í 11 ár og það var ekki auðvelt að láta hann fara en það varð því hann var orðin mikið veikur.
Nú konan í afgreiðslunni kom og spurði hvað hefði gerst ég sagði henni það, fleiri komu að og voru alveg hneisklaðir á orðbragði mannsinns.
Ég fór svo bara heim til  mín og sofnaði alveg útkeyrð eftir svona framkomu í manni sem ég þekki ekki neitt, hef bara séð hann í matsalnum.

Ég bý að Njarðarvöllum 6 í Reykjanesbæ þar eru leiguíbúðir fyrir 55ára og eldri síðan er matsalurinn sem fólk utan úr bæ geta komið og fengið sér að borða.

Ég er nú svo græn að ég taldi að fólk komið á efri ár ættu að virða hvort annað og hafa það skemmtilegt saman og sem betur fer er það yfirleitt þannig.

Þeir sem eiga í erfiðleikum með lundafar sitt ættu að fá eitthvað við því hjá lækni, tek fram að þessi maður hefur tekið þátt í ásamt öðrum körlum að viðhafa dónaskap.

Takk fyrir mig

100 9941
Neró og Jano þeir eru báðir farnir á annað tilverustig


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl: Guðrún Emilía !

Ég samhryggist þér - og þínu fólki: vegna fráfalls þessarra beggja vina ykkar, innilega.

Framkoma - þessa mannkertis, sem sendi þér þennan illyrmislega tón, lýsir hvorutveggju:: mannvonzku sem og heimsku, og megi hann skömm mikla, af hafa.

Eftir því - sem ég kynnist mannlífinu betur, þykir mér vænna um Dýraríkið, Guðrún mín.

Með beztu kveðjum /  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 14.5.2015 kl. 20:44

2 identicon

Leitt að heyra þetta Milla mín þetta er slíkur og þvílíkur óþverraskapur svona gera bar gamlir hrokafullur karlar knús ég veit að söknuðurinn er sár.

egvania (IP-tala skráð) 14.5.2015 kl. 20:46

3 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Ótrúleg framkoma. Líklega hefur hann haldið að hann væri fyndinn og verið að slá sér upp í augum annarra :( Þvílíkt mannkerti.

Það fer vel um Neró fyrir utan eldhúsgluggann minn. Knús.

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 15.5.2015 kl. 11:19

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk fyrir þín orð Óskar Helgi
Dýrin koma allavega vel fram við okkur mannfólkið <3

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 15.5.2015 kl. 19:03

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Veit ekki hvaða manntegundir gera svona elsku Egvanía mín já söknuðurinn er sár knús til ykkar <3

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 15.5.2015 kl. 19:04

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Elsku Silla mín mér þykir afar vænt um að hann skuli vera í landinu ykkar, takk elskuleg.
Maðurinn er bara illmenni

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 15.5.2015 kl. 19:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.