Það hefur ekkert breyst,

Fyrir nokkuð mörgum árum síðan, notaði ég þessa síðu til afléttingar á sálartetrinu mínu, eins og svo margir aðrir, en síðan minnkaði stöðugt áhuginn, vegna stöðugra mótmæla við minni skoðun, eða því sem ég var að tala um, fólk sem segir sínar skoðanir á kostnað þess að ég og allir aðrir þurfi nú endilega að breyta okkar, OMG! Hvað er eiginlega að fólki?
Veit reyndar að margur maðurinn lifir og hrærist á og í útásetningum á allt og alla. 
Þetta aumingjans fólk byrjar daginn á röfli um eitthvað sem er í morgunfréttunum ( ef það hlustar yfirleitt á fréttir) heldur  síðan út í daginn, í útásetningastuði, öllum til ama, kemur svo heim til sín, ég mundi þá ætla að þörfin væri önnur, en nei, ég held að makinn meigi þakka fyrir ef ekki útásetningar-eðlið heldur sínu striki, og skemmir ástarlífið, og allt hitt í leiðinni.
Ég hef stundum kallað okkur íslendinga, ömurlegustu útásetningarþjóðina sem fyrirfinnst.
Í alvöru kæru landsmenn, hvernig væri að snúa við blaðinu, hafa gaman, bera virðingu fyrir hvort öðru.
Lífið er núna. Verum til í gleðinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.