Sorglegt.

Já mér finnst það sorglegt þegar svo er komið fyrir 16 ára ungling
að hann veit ekkert í sinn haus.
Hvað er eiginlega að, og hvar er potturinn brotinn.
Kannski vill engin viðurkenna að hann sé brotinn, þetta hafi bara gerst,
Æ.Æ. hann drakk bara of mikið, en hann á ekki að vera að drekka.
Hver er ástæðan fyrir því  og hver ber ábyrgðina.

Hef sagt það áður, en aldrei er góð vísa of oft kveðin.

Fólk þarf að vakna til lífsins með að agi, virðing og kærleikur er
það sem á að byrja í vöggu, það er ekki nægilegt að ætla sér að aga
þegar fyrsta sprungan kemur í pottinn.

Kæra mannfólk spyrjið ykkur að því, hvernig einstaklinga þið
eruð að ala upp út í lífið, koma þau til með að bjarga sér
þessir englar okkar.
Mínar skoðanir og hugleiðingar.
                              Góðar stundir.


mbl.is 16 ára réðst á lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Þetta löglega "fíkni"efni er oft á tíðum ekkert skárra...ég hef aldrei haft smekk fyrir að nota það

Ragnheiður , 30.9.2007 kl. 13:52

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ragga mín ég er heldur ekki vínkona þó ég hafi smakkað  það
sér í lagi á árum áður, en það hefur aldrei skipt mig neinu máli.
mér finnst bara sorglegt hvað ung börn eru farin að nota
þetta löglega fíkni efni. Kveðja. Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 30.9.2007 kl. 15:30

3 Smámynd: Gísli Sigurðsson

Ég hef nú orðið var við að mörgum foreldrum þykir alveg sjálfsagt að 15 - 16 ára börn þeirra drekki bjór og hjálpa þeim jafnvel að verða sér úti um hann, og á það ekkert síður við úti á landi en suðvestur hornið. Það er mín skoðun að því lengur sem unglingar draga það að byrja að neyta áfengis því minni áhætta fylgi þeirri neyslu. 

Milla (ef ég má kalla þig það) kveðjur til Húsavíkur héðan úr Borgarnesi.  

Gísli Sigurðsson, 30.9.2007 kl. 20:19

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sæll Gísli, já þú mátt kalla mig Millu, hef alltaf verið kölluð því nafni,
en í blogginu hugnast mér það betur að fólk kenni sig sínu fulla nafni.
Gælunafnið má síðan nota ef fólk vill.

Já Gísli það er ekki síður úti á landi. Ég bjó á suðurnesjum í 27.ár
ól upp mín börn þar. Svo á Ísafirði í 10.ár og núna er ég að elta
hluta af börnum og barnabörnum og bý á Húsavík, þekki ég því 
landsbyggðina afar vel.
Ég er sammála því sem þú skrifar.
Kærar kveðjur til hins undurfagra staðar Borgarness.
                                       Milla.
 

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 1.10.2007 kl. 19:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.