Femínisti eða ekki.

Femínistar og þær sem segjast ekki vera femínistar,
hvernig væri að við tækjum okkur allar saman og mótmæltum
því sem er brýnt að mótmæla og fylgja því eftir.
Mér fynnst það vera að bera í bakkafullann lækinn
að fara að telja það allt upp sem þarf að laga,
því við vitum það allar, hvað þarf að gera.
Eitt er alveg á tæru að við getum ekki umturnað
skoðunum eða gjörðum annara,
en við getum sagt okkar, og mótmælt misræminu.
Við þurfum ekki að taka þátt í hvorki einu eða neinu,
nema að við viljum.
Við höfum valdið yfir okkar lífi,
Og við getum allt sem við viljum.

Að mínu mati (og hef sagt það áður) er þátturinn Silfrið bara
úr sér genginn.
Hvernig væri að það kæmi þáttur sem kona stjórnaði?
Hún mætti bara ekki vera of háfleig, mér leiðast háfleigar konur.
Hress og skemmtilegur þáttur,
og að sjálfsögðu kæmu bæði kynin í viðtöl.


mbl.is Konur sniðganga Silfrið í mótmælaskyni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það var þáttur, Sirrý, sem valdi mestmegnis bara konur og konutengd mál í sínum þætti, kvörtuðu þið og væluð þá? NEI, enda ekki hallað á kvenna hlut þá.

Geiri.is (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 15:10

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Fólk með Sirrý var alveg frábær þáttur, man ég ekki betur en þar hafi verið komið inn á mannlífið í heild sinni.

Kæri Geiri lesa betur, ég var að tala um þátt í stíl við Silfrið, sem kona væri þáttar-stjórnandinn.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 27.11.2007 kl. 16:08

3 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég horfi aldrei á Silfrið og horfði aldrei á Sirrý, eitthvað löt við að horfa á svona spjallþætti! 

Huld S. Ringsted, 27.11.2007 kl. 16:31

4 identicon

Hvernig væri þá að framkvæma það? Í stað að kvarta yfir þeim sem til er. Þið, já þið konurnar eru nú eftir allt nánast 50% af þjóðinni, ættuð alveg að getað startað einsog eitt stk "Silfri Guðrúnar", það er einmitt það sem ég skil ekki, hvernig væri að framkvæma sjálfar í stað þess að kvarta yfir karlþjóðinni og því sem hún gerir ekki rétt samkvæmt ykkar skoðunum...

Geiri.is (IP-tala skráð) 27.11.2007 kl. 19:11

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sammála þér Huld mín horfi næstum aldrei nú orðið á varpið,

dett stundum í barnaefni með litlunum mínum.

Voðalega ertu hörundssár Geiri, ja fyrir svona 40 árum

hefði ég alveg verið til í að stjórna svona þætti, en þar sem ég er orðin þetta ung þá held ég að aðrar verði að sjá um þetta. Svo læt ég þig vita, unginn minn að það er akkúrat það sem við höfum verið að gera:,,framkvæma".

Lest þú ekki söguna???

Bara frá síðustu stríðsárum, gott fyrir þig að byrja þar.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 27.11.2007 kl. 20:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband