Frábært.

Þar sem ég hef gerst mikil aðdáandi Latabæjar myndana
þarf ég nú aðeins að taka til máls.
Til hamingju Magnús og frú, Latabæjar-dæmið á svo sannarlega skilið
að fá umfjöllun, þar sem hann Magnús byrjaði smátt og vann sig síðan upp í
að verða stórveldi á þessu sviði.
Ég á tvær snúllur sem að elska þessar myndir og sú yngri, sem er þriggja
er nú bara Solla alla daga,
og hér eru til allar myndir sem hafa verið framleiddar um Latabæ.
Þegar við erum að horfa sem er ansi oft, þá er sungið dansað
og farið í leikfimi, og amma þarf að vera með í þessu öllu,
ekki þykir mér það leiðinlegt, en stundum svolítið erfitt.
Þetta er í alla staði frábært efni og krakkarnir fara eftir því
Enn og aftur til hamingju og haldið áfram að gefa okkur svona gott efni fyrir börnin.
                                                  Góðar stundir.


mbl.is Magnús Scheving meðal ríkustu manna heims?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Þetta er snilldarbarnaefni..Vignir ömmustrákur (5ára) hendist hér um allt og segir ; Amma ! sjáðu!! og þá eru það kollhnísar og heljarstökk um allt gólf

Ragnheiður , 6.1.2008 kl. 15:32

2 Smámynd: Sesselja  Fjóla Þorsteinsdóttir

Magnús er snillingur sem þarf að fjalla meira um hér á landi og heiðra.

Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 6.1.2008 kl. 16:29

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ragga þú mátt þakka fyrir meðan hann krefst þess ekki að þú takir þátt,
en við verðum að taka þátt að vissu marki.
Meðan við erum að segja við þau " þú getur þetta" þá fáum við það sama á móti, enda er þetta svo skemmtilegt, svo ég tali nú ekki um hvað þetta skerpir tjáninguna hjá þeim.
Þau eru yndisleg, mín litla verður 4 ára 11 mars.
Já hann Magnús er snillingur það verður seint hægt að meta vinnuna hans í þessu máli.
                                   Knús á ykkur stelpur
                                           Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 6.1.2008 kl. 16:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.