Hverju á maður svo að trúa?

Margrét Sverrisdóttir sagði Ólaf ekki hafa rætt málið við sig,
hún hefði frétt það eins og hinir.
Ásta Þorleifsdóttir segir Ólaf F, Magnússon hafa sagt frá því
að samtöl ættu sér stað við sjálfstæðisflokkinn.
Svona var þetta líka þegar Björn Ingi fór í meirihlutasamstarf við
vinstri flokkana, að engin vissi neitt.
Nú er ég ekki að tala um nein málefni heldur sannleika.
Geta pólitíkusar aldrei sagt okkur bara satt?

                           Góðar stundir.

mbl.is Ólafur sagði F-lista frá samtölum við sjálfstæðismenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Held að allir haldi í raun að þeir séu að segja satt en túlkunin sé bara mismunandi! ...  eða hvað ?

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 28.1.2008 kl. 09:07

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Guð er það til, að maður haldi að maður sé að segja satt,
það er þá ekkert skrýtið þó allt sé eins og það er
held ég hafi sagt það áður, en, flott nafnið þitt.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 28.1.2008 kl. 09:22

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er ljóst að Margrét hefur ekki sagt satt.  Enda hentaði það henni að mála Ólaf með sem dekkstum litum.  Þetta kemur ekki á óvart, miðað við annað. 

Þetta er sama og með læknisvottorðið, það átti að koma í veg fyrir að Ólafur kæmi aftur til starfa með öllum ráðum.  En sem betur fer síast sannleikurinn út að lokum.  Ég vona bara að þetta fari allt saman á besta veg, og að sem flestir geti unað við niðurstöðurnar.  Lætin eru eiginlega orðin það mikil að flestum ofbýður.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.1.2008 kl. 09:52

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ásthildur mín ég á bara svo erfitt með að trúa illu upp á fólk,
en verð víst að fara að trúa því að orð standa ekki.
                     Kveðja til ykkar á Ísó.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 28.1.2008 kl. 10:45

5 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Það væri kannski ráð að hafa lítið ljós sjáanlegt einskonar umferðarljós á pólitíkusum sem kviknar á þegar það er í viðtölum svo fólk út í bæ, fólk sem treystir á málefnaleg svör og vill ekkert nema sannleikann, sjái dýrðina í lit.

RAUTT STOP LYGI, GRÆNT SANNLEIKUR og GULT PÓLITÍSKT LEYNDARMÁL.....segi svona kv. eva

Eva Benjamínsdóttir, 28.1.2008 kl. 12:35

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ef þú leysir það ekki ,þá hver Eva mín þú ert frábær.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 28.1.2008 kl. 12:50

7 Smámynd: Ásgerður

Ég trúi nú frekar Margréti en Ólafi,,,þetta er allt með ólíkindum,,að "flokkur" sem enginn kaus sé nú með borgarstjórastólinn,,,,,þetta gerist BARA á Íslandi

Ásgerður , 29.1.2008 kl. 06:30

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já Ásgerður þetta og svo margt annað gerist bara á Íslandi.
Og ég trúi eiginlega engum þegar stjórnmál eru annars vegar.Það sem ég var að meina að einn segir þetta og hinn hitt, svo kemur sá þriðji og segir nei þetta var ekki svona heldur hinsegin,
og allir eru svo saklausir á svipinn
eins og ég hef svo oft sagt ég trúi engu fyrr heldur en það er komið á borðið svart á hvítu

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.1.2008 kl. 09:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband