Eitt af því sem gleður mann.

Það sem gladdi mig í morgun var að ung stúlka
óskaði eftir því að gerast bloggvina mín og var ég
fljót að samþykkja það.
Fyrir nokkru síðan rakst ég inn á síðu, þar sem var verið að ræða
vandræði með,  þegar börn neituðu að fara í skólann,
voru margir sem kommentuðu  og sögðu sína reynslu af
samskonar málum.
Þá kom þessi unga stúlka með komment sem heillaði mig
vegna þess að það var svo rétt og skynsamlegt sem hún sagði.
Í framhaldi af því leit ég inn á síðuna hennar,
og kolféll fyrir persónuleika þessara ungu stúlku.

                       Persónu lýsing hennar er alveg frábær.
                                             Hún segir:
Ég er 14 ára málglöð, rauðhærð og furðuleg stúlka frá Hornafirðinum fagra.
ég læt fólk vita þegar mér líkar ekki eitthvað, og segi mína skoðun á öllu.
Ég er svona óþægileg manneskja.
Ég er framtíð Íslands, svo leggið nafn mitt á minnið.

Róslín Alma  er frábær, frísk,  vel máli farin og góður penni,
og hver fellur ekki fyrir svona stelpu.
                      Takk fyrir mig. SmileMilla.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég kíkti aðeins á síðuna hjá henni og hún er svo sannarlega vel máli farin og góður penni, erfitt að sjá að hún sé aðeins 14 ára.

Huld S. Ringsted, 30.1.2008 kl. 11:37

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Hallgerður, Huld og Einar takk fyrir að kommenta á þessi skrif mín,
hélt kannski að ég hefði farið á flug með þessi skrif mín, en það hefði þá verið allt í lagi.
Því svona leið mér í morgunn, og svona líður mér enn, nývöknuð og hress, nefnilega lagði mig með Neró minn, vorum eitthvað svo þreytt,
Nú er hann búin að fara með afa að ná í blöðin,
og kaupa mjólk. Eftir að við erum búin að fá okkur kaffi ætla ég að
búa til kjötbollur úr hreindýrahakki,
það er verst að þær klárast alltaf.
Takk fyrir mig Hallgerður sömuleiðis, bara að segja ykkur að þið
bloggvinir mínir gefið mér gefið mér lit og ljós á hverjum degi.
                           Góðar kveðjurMilla.
Ps.
Einar ekki gefast upp þarna á skaganum, við verðum öll að láta í okkur heyra, með þeim sem vilja breytingar.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 30.1.2008 kl. 14:37

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Úff, ég bjóst nú ekki við þessu
Takk fyrir get ég bara sagt, mér fannst alveg sjálfsagt að adda þér á vinalistann, þar sem að þá er mun léttara að fylgjast með

Var bara aðeins að líta upp frá lærdómnum, hafði 40 mínútur til að læra undir próf og er svo að fara að stjórna bingói..

En takk svo kærlega mikið fyrir þessi mögnuðu orð
Knús!!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 30.1.2008 kl. 19:10

4 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Gaman að sjá og heyra að hér er ekkert kynslóðabil . Það eru tökkur í stelpunni ekki spurning, á fullu í félagsmálunum með skólanum. Ég á tvö rauðhærð systkinabörn, annað í Noregi, hitt í Svíþjóð. Í Noregi á ég líka átta mánaða afabróðurson og hann er smækkuð mynd af pabba sínum og að sjálfsögðu rauðhærður og heitir fuglsnafni.

Það er svo gott að fara á flug með Millu frænku, velkomin í hópinn Róslín Alma, glæsilegt nafn og þú berð það með rentu. 

Eva Benjamínsdóttir, 30.1.2008 kl. 19:41

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Eva mín er þetta ekki æðislegt, ég veit að það eru til fullt af svona unglingum, það heyrist bara allt of sjaldan í þeim.
                                Kveðja Milla frænka.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 30.1.2008 kl. 20:38

6 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Haha, ég er alveg að fara hjá mér sko!!
Það er samt alltaf að fækka af svona unglingum því er ver og miður! Allir sem vilja ekki vera svona "útúr" og herma eftir öðrum til að komast inn í hópinn. En ,, ég kem til dyranna eins og ég er klædd!"

Róslín A. Valdemarsdóttir, 30.1.2008 kl. 22:17

7 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Jú, Milla mín. Lífið getur verið svo yndislegt og fallegt.

 Annars verð ég að segja þér að ég var víst barnaskelfir, veit þó ekki til þess að ég hafi nokkurntíman verið vond við börn.

Bróðurdóttir mín, settist upp í rúminu sínu og öskraði út í loftið einsog hún sæi eitthvað hræðilegt og vont, sem ég sá ekki. Ég varð alveg skelfingu lostin og reyndi að komast hjá því að passa þessa fjögurra ára snót. Svo var það frændi sem trylltist þegar hann sá mig, öskraði, grenjaði og stífnaði upp, einsog ég væri Gríla gamla. Ég starði bara í forundran á óvitann. Guði sé lof, ég var aldrei beðin um að passa hann. Þetta er fullorðið fólk í dag og stráksi á fótboltavellinum.

Takk fyrir mig. kveðja eva frænka. 

Eva Benjamínsdóttir, 30.1.2008 kl. 22:37

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Það er akkúrat það sem er svo gott, er maður stendur með sjálfum sér.
Ég á barnabörn þær eru að verða 17 ára tvíbura stelpur komnar í framhaldsskóla. þær eru svona eins og þú standa með sjálfum sér.
Fara, gera, versla, hlusta og horfa bara á það sem þær vilja,
og þeim er alveg sama hvað aðrir hugsa eða segja.
Afar stolt er ég af þessum stelpum mínum.
                     Kveðjur og knús inn í daginn.
                             Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 31.1.2008 kl. 08:06

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Eva þú veist að börn sjá það sem er í kringum mann,
kannski það hafi verið álvar með stór eyru með þér
er þú varst að passa þessa öskurapa
                    Kveðja frænka mín
                       Þín Milla.
 

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 31.1.2008 kl. 08:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband