Gerist aftur og aftur.

Er það virkilega alveg bráðnauðsynlegt að þessir bílar fari svona út í óvissuna?
Eftir hverju er verið að bíða, slysi eða hvað. Þeir eru nú ekki geðslegir
fjallvegirnir okkar í svona óveðri.
Á ég ekki til orð yfir þessa vitleysu og svo eru björgunarsveitirnar
kallaðar út, væri ekki nær að bíða af sér veðrið.
                         Góðar stundir.


mbl.is Viðbúnaður vegna útafaksturs í Skötufirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þeir eru svo miklir víkingar þessir karlmenn okkar
Þurfa að sanna sig greyin.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 31.1.2008 kl. 10:03

2 identicon

Þetta er nú ekki fjallvegur þarna í Skötufirði.

Bílstjórar flutningafyrirtækjanna eru undir ákveðni pressu þar sem þeir verða að komast í í útflutningshöfn með fraktina í veg fyrir flutningaskipin sem fara á ákveðnum dögum. Þess vegna fara þeir af stað út í svona veður.  

Trukkari (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 10:07

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Skötufjörðurinn er að sjálfsögðu ekki eiginlegur fjallvegur, ekki veit ég hvoru megin hann fór út af, en ansi bratt er niður, er að sunnan þú kemur og ekur inn fjörðinn en er þú ekur síðan út fjörðinn hinumegin
þá er sléttlendi.
Það skiptir ekki máli hvort þú ert uppi á fjöllum eða niður við sjó í svona veðri, allt er svo kolsvart,að maður sér ekki út úr augum.
Mér þætti gaman að vita hvað þeir gerðu við blessaðan útflutninginn
ef að það félli snjóflóð á veginn og ekki væri hægt að opna hann
snögglega.
Það er aldrei afsakanlegt að pressa menn svo mikið að þeir stofni lífi sínu í hættu.
                             Töffari Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 31.1.2008 kl. 12:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband