Að njóta lífsins og láta drauma sína rætast.

Þessi sæmdarhjón Jón Baldvin og Bryndís Schram
hafa þurft að ganga í gegnum súrt og sætt
eins og við öll hin, en aldrei hefur þeim fallið verk úr hendi
það getur ekki verið eins uppfull af fróðleik
og visku sem þau eru.
Ég óska þeim til hamingju með paradísina sína.

                              Góðar stundir.
 


mbl.is Jón Baldvin og Bryndís Schram láta gamlan draum rætast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Æ, þau eru svo krúttleg og mikið fyrirmyndarpar. Mér finnst mjög vænt um þau bæði og óska þeim velfarnaðar á Spáni.

Eva Benjamínsdóttir, 31.1.2008 kl. 12:45

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já þau eru bara flott, það sem mér finnst svo gott við þau er að þau hafa bara gert það sem þeim hefur hugnast og fundist rétt og skemmtilegt
hverju sinni.
Og ég sakna Jóns Baldvins úr pólitíkinni, þvílíkur ræðusnillingur.
Það var alltaf gaman að hlusta á hann þó maður væri ekki sammála,
það var auka atriði.
                                     Knús á þig frænkaMilla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 31.1.2008 kl. 13:04

3 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Já, sammála Jón Baldvin er ræðusnillingur og mjög skemmtilegur maður. Það var ekki leiðinlegt að synda með Bryndísi í Neslauginni. Hún er svo áhugasöm um allt fróð og yndisleg manneskja. Ég er líka hrifinn af þeirra pólitík, hún er sanngjörn ef sanngjarnt er til í pólitík.

Knús á þig frænkaeva

Eva Benjamínsdóttir, 31.1.2008 kl. 16:30

4 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Bryndís og Jón eru mjög góðir vinir okkar og eru búin að vera til margra ára.  Vissi af þessu brambolti þeirra fyrir ári síðan en loks hefur draumurinn ræst og þau komin í sína litlu paradís.  Mun sakna samt þess að koma ekki við í Dísukoti þegar ég heimsæki Frón en fer örugglega fljótlega í heimsókn í Dísuvíkina á Spáni.

Ía Jóhannsdóttir, 31.1.2008 kl. 18:35

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Mikið ert þú lánsöm Ía að  þekkja þau, það er örugglega ekki leiðinlegt að vera með þeim.
Eva mín svo þekkir þú hana úr sundlauginni, já hún er fróð og
yndisleg kona, ekki ein af þeim sem setur út á allt og alla eins og sumir gera, þoli það ekki.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 31.1.2008 kl. 19:21

6 identicon

Þetta er allt eitt samsæri,,Sanniði til,,Hvað hafa Spánverjar gert til að verðskulda þetta,, Hvað dettur þeim næst í hug,,

bimbó (IP-tala skráð) 31.1.2008 kl. 19:46

7 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Milla þau eru skrautlega skemmtileg

Ía Jóhannsdóttir, 31.1.2008 kl. 20:45

8 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Fyrirgefiði dömur mínar, ég þurfti að fara í bíó. 

 Gaman að sjá þig Ía, mig minnir að ég hafi flogið með þér oftar en einu sinni  og þú þekkir skemmtilega fólkið frábært, bið að heilsa þessum elskum Ía ef þú sérð þau á undan mér.

Þar fyrir utan var elsku hjartans Mumma mín bænheyrð sl. nótt.

Þegar hún hringdi til mín eftir skutlið og samveruna í Europris út á Granda í gær, sagðist hún ætla að biðja tvisvar sinnum fyrir mér, svo góð var sú stund. Sjálf steingleymdi ég öllum bænum í fyrrinótt og var ekki að biðja um neitt.  Skemmtilegu turtildúfurnar á Spáni eru líka vinir Mummu minnar .

Í morgun var hringt frá Reykjalundi, (sem ég var búin að afskrifa og farin í Gáska) og sagt að það hafi losnað pláss handa mér. Og ég er svo þakklát vegna þess að ég er búin að bíða svo lengi. Ég fer í endurhæfingu og tek á þessu beytta líferni. ..koooma svo!!! allt undir eftirliti fagfólks. Verð frísk og stælt í vor, kúl til að kíkja á Spán...segi svona.... Knús  og kveðja eva

Eva Benjamínsdóttir, 1.2.2008 kl. 00:50

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já Ía þykist alveg vita það
Eva mín til hamingju með Reykjalund, þar var ég í 3 mánuði 1993.
Það var stórkostlegur tími, ef maður fær ekki hjálp þar, þá hvergi.
Þarna er yndislegt fólk og jákvæðnin og kátínan í hávegum höfð,
njóttu þess allan daginn hvað það er gott að vera þarna Eva mín,
þarna er allt til alls meira að segja gott bókasafn.
Hvenær ferðu?
                               Knús inn í daginn þinn Eva mín
                                        Þín frænka Milla.
Mundu, það kemur til manns, sem maður þarfnast,
en maður þarf að elska sjálfan sig.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 1.2.2008 kl. 06:24

10 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Takk Milla mín ég er í sjöunda himni.  

Ertu með e-mail sendu mér það á evabenz@hotmail.com

Eva Benjamínsdóttir, 1.2.2008 kl. 13:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband