Ekki er nú ein báran stök.

Hvað er að því að bóndinn búi áfram á Laufási?
eru þetta ekki fullmiklar kröfur, hefði aldrei átt að
setja þetta í samninga í upphafi.
og núverandi tilboð er ósættanlegt.
Hvað er eiginlega að þessum mönnum kristinnar,
sem sitja í þessari nefnd suður í Reykjavík,
og ákveða bara að, já hvað, að þessa jörð eigi ekki að nýta.
Því varla býr nokkur prestur nútildags.
                       Góðar stundir.


mbl.is Gert að flytja húsið frá Laufási
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er þetta ekki bara einhver pólitík?

padre (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 06:50

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

hef verið að hugsa um það, er ekki allt pólitík,
en kirkjunnar menn gera þetta allt í góðri trú.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.2.2008 kl. 06:53

3 identicon

Kirkjan á þessa jörð og hefur boðið bóndanum sem þar situr að leigja jörðina á áfram með því skilyrði að hús sem hann reisti sér verði flutt af jörðinni. Húsið er sérstaklega hannað til flutnings vegna þess að heimild fyrir byggingu þess var einmitt þeim skilyrðum bundin að húsið yrði flutt á brott þegar prestsþjónustu sr. Péturs væri lokið.

Stefán Einar Stefánsson (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 09:34

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já en af hverju þarf endilega að flytja húsið á brott?
Er það fyrir þar sem það stendur.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.2.2008 kl. 14:53

5 identicon

sæl,

húsið er ekki fyrir neinum, maður skyldi ætla að ungum presti með fjölskyldu myndi þykja fengur í því að hafa við hliðina unga fjölskyldu og þrjá litla leikfélaga

Auðvitað er eðlilegast að þau fái að hafa íbúðarhúsið á jörðinni þann tíma sem þau leigja jörðina, það sér hver heilvita maður.  Þórarinn hefur í raun ekki farið fram á annað.  Að heimta það af þeim að fara með húsið á sama tíma og þau fá jörðina leigða er náttúrulega bara meinsemd og ekkert annað.

kveðja
Ásta F.

Ásta F. Flosadóttir (IP-tala skráð) 8.2.2008 kl. 22:49

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk fyrir innlitið Ásta, ég er sammála þér í þessu máli.
                              Kveðja og góða helgi.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.2.2008 kl. 09:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband