Áhyggjuefni! vita þessir menn hvað það er?

Magnað að láta þetta út úr sér. 
Áhyggjuefni segir samgönguráðherra,
hef ekki trú á því,  þetta þarf ekki að taka svona langan tíma,
eftir hverju eru þeir að bíða? Fleiri dauðaslysum eða hvað,
er ekki komið nóg af slysum, tjónum og öðrum áföllum.
Maður getur alveg brjálast úr reiði þegar er verið að tala
um svona eins og því miður hefur þetta og hitt tafið
fyrir þessu og hinu.

Vegagerðin á Íslandi er bara til skammar.
Það er alltaf verið að vinna fyrir aftan bossann á sér.
Ein ofsareið, en vonandi lýður þeim vel ráðamönnum
þessa lands.
                              Góðar stundir.


mbl.is Kristján: Ástandið á Reykjanesbraut áhyggjuefni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það er ótrúlegt hvað þeir komast upp með að merkja illa.  Liggur við að þú sjáir skilti 2 metrum áður en þú lendir í þrengingu.  Þetta mál er þjóðinni til skammar, held að ætti að senda þá til Evrópu til að læra svona merkingar. 

Ásdís Sigurðardóttir, 28.2.2008 kl. 18:34

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Merkja illa og þeir eiga bara að láta klára brautina.
Þeir eiga nú örugglega peninga til að fara til útlanda,
þó eigi séu til peningar fyrir öðru.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 28.2.2008 kl. 20:30

3 identicon

Skil nú ekki af hverju þeir eru ekki  löngu búnir að laga þrengingarnar sem um er að ræða þarna á brautinni. Ég keyrði þarna í fyrradag, sé engar breytingar þarna síðan þeir þrengdu brautina til að byrja með á síðasta ári. Það þarf dauðaslys til þess að þeir taki við sér, það er lönguvitað því miður.

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 28.2.2008 kl. 21:02

4 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Sammála tók eftir þessu þegar við keyrðum til Keflavíkur um daginn, bara allt í einu þrenging og ekkert smá kröpp beygja inn í hana. Ekki bara einu sinni heldur þrisvar. 

 Þetta er þvílíkur slóðaháttur og síðan er verið að blása upp lestarsamgöngur, eitthvað hljóta þær nú að kosta ríkið.  Það hefði átt að tolla þennan veg um leið og hann var breikkaður þá hefði skuldbindingin orðið miklu meiri við hinn almenna vegfaranda.  Vitleysingar! 

Ía Jóhannsdóttir, 28.2.2008 kl. 21:02

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ía og Magga er ykkur svo hjartanlega sammála.
þetta eru asnar, sitja í sinni sjálfsánægju,
og hugsa ekkert um aðra.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 28.2.2008 kl. 21:13

6 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

 

Get ekki betur séð en að allar merkingar á svæðinu miðist við uppgefinn hámarkshraða, það er að segja 50 km/klst.

Ef farið er eftir hraðatakmörkunum þá eru þetta nægar merkingar.

Ólafur Björn Ólafsson, 28.2.2008 kl. 23:53

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ætla ég nú að segja þér mína skoðun.
Ég ók þessa leið frá Njarðvík til Garðabæjar og fór eftir öllum hraða-afmörkunum, en fannst þetta alveg fyrir neðan allar hellur.
Það þarf að sjást í merkingar í myrkrinu.
Veit ég vel að það er fullt af vitleysingjum í umferðinni ætla ekki að mæla því bót, en ég er ekki ein af þeim.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.2.2008 kl. 07:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.