Karlmaður á áttræðisaldri!

Tvö ár, er það nægilegur dómur á mann sem hefur eyðilagt
tvö líf?
 
Nei ekki að mínu mati, þetta er viðurstyggilegt ofbeldi.
Eru menn svo siðskertir að þeim finnist þetta bara í lagi?
Ég get nú ekki annað en hlegið að þessum miskabótum,
þó að ég viti að peningar geti hjálpað til með kostnað af
sálfræðihjálp og fleiru, þá hvað gera þær, ekkert að mínu mati.
500.000 og 700.000 þúsund og vertu svo bara góð og sjáðu
um þig sjálf.
Ef þessar stúlkur eiga engan góðan að til að hjálpa þeim og
styðja við bakið á þeim, þá hvað?
Ég veit að það er til fullt af góðu fólki,
sem er tilbúið að vinna með þessum konum, en þær mæta
einnig hrokafullum niðurlægingum hjá mörgum sem sýst skildi.
                       Guð veri með ykkur stúlkur mínar.


mbl.is 2 ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Oj barastastasta! Maður fær nóg af svona fréttum, alltof lágur dómur sem þessir blessuðu menn fá. En mér finnst enn ógeðslegra af manni á áttræðisaldri að gera svona, hann ætti aðeins að vera búinn að lifa sínu lífi! En eyðileggur tvö í staðin, oj barasta!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 31.3.2008 kl. 17:42

2 identicon

Horfum á þessar miskabætur og þær bætur sem ekkja Laxness fékk fyrir dóminn vs. Hannesi Hafstein sem var 1,5 milljónir. Hver ætli að hafi skaðast meira, þessar stúlkur eða Auður Laxness og hennar fjölskylda?

Margrét Össurardóttir (IP-tala skráð) 31.3.2008 kl. 17:42

3 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Eins og kemur fram í fréttinni virðast þessar stúlkur eiga í miklum erfiðleikum í dag.  Allt of létt tekið á þessu máli.

Ía Jóhannsdóttir, 31.3.2008 kl. 17:46

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Róslín þetta er bara ógeðfellt og það er rétt hjá þér að hann hefði átt að vera búin að þroskast, en barnaníðingar eru og verða alltaf barnaníðingar.

Magga það var ekki Hannes Hafstein, heldur Hannes Hólmsteinn Gissurarson. Já það er hægt að líta á mismuninn, þvílíkt rugl,
það þarf að laga þetta heldur betur.
                                    Knús til ykkar
                                         Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 31.3.2008 kl. 17:51

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Rétt hjá þér Ía mín það verður að herða dómana fyrir slíkt ofbeldi.
Þú hefur þorað út úr herbergi í dag, nokkur fleiri áföll?
                               Knús á þig
                                 Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 31.3.2008 kl. 17:53

6 Smámynd: Þorkell Sigurjónsson

Vildi bara láta í mér heyra.  Kær kveðja.

Þorkell Sigurjónsson, 31.3.2008 kl. 18:26

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk fyrir stuðninginn Þorkell.
Kær kveðja Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 31.3.2008 kl. 18:32

8 Smámynd: Huld S. Ringsted

Segi eins og Magga, munurinn á skrifuðu orði eða viðbjóðslegri barnaníð er fáránlegur. Það sýnir okkur hver gildin eru í þessu landi, fullorðnir hátt verðlagðir en börnin bara núll, ég get orðið alveg hrikalega reið þegar ég hugsa um svona mál

Huld S. Ringsted, 31.3.2008 kl. 18:56

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Huld mín þar er ég sammála þér þar sem börnin eru annars vegar er eins og engin virðing sé sýnd, en fullorðnir þeir virðast eiga allan rétt.
                        Kveðja Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 31.3.2008 kl. 19:01

10 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Já mér Finns alltof létt tekið á þessu máli, blessaðar stúlkurnar.

Knús Milla mín

Kristín Katla Árnadóttir, 31.3.2008 kl. 20:38

11 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Ég gæti gubbað, þvílíkt perrastikki og ranglát niðurstaða, finnst mér örugglega. Ég hef verið að lesa Steinunni Helgu Sigurðardóttir og ætla að reyna að verða ekki svona ofsa reið eins og ég á eðli til þó það fjúki fljótt úr mér. En Milla, svona kallar OJ.

Eva Benjamínsdóttir, 31.3.2008 kl. 23:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband