Ofbeldi á ekki að eiga sér stað.

Ég er ekki hlynnt ofbeldi af neinu tagi,
ef að þetta hafa verið borgarar sem grýttu grjótinu
þá er það ekki góður stuðningur við málstaðinn.

Enn svo er annað mál að fólki getur nú sárnað, er einn
af ráðamönnum þjóðarinnar kalla strákana okkar
hryðjuverkamenn, ja hérna þeir vita ekki hvað það er.

Vonandi leysist þetta mál fljótt og að komið verði með
góðar lausnir á málum okkar allra,
því þetta kemur niður á okkur öllum.
mbl.is Lögregla beitir táragasi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Of langt gengið að mínu mati, var að blogga um þeta.

Ásdís Sigurðardóttir, 23.4.2008 kl. 11:55

2 Smámynd: M

Sammála, aldrei með ofbeldi. En fólk er bara búið að fá nóg.  Fyrri aðgerðir eru hundsaðar og tek ég ofan fyrir þessum mönnum og konum að gefast ekki upp.

M, 23.4.2008 kl. 12:51

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Langt gengið já það er rétt, en hvenær er of langt gengið gagnvart okkur, ég er sammála Emminu fólk er búið að fá nóg, svo mikið meira en nóg.
Hallgerður þetta er að verða eins og í France.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 23.4.2008 kl. 14:34

4 Smámynd: Helga skjol

Algjörlega er fólk búið að fá sig full sadda af öllum þessum hækkunum og ég er sammála því að aðgerðar er þörf en ofbeldi leysir aldrei neitt,hins vegar er alveg orðið löngu tímabært að við landsmenn förum að taka höndum saman og láta óánægju okkar í ljós hvað varðar margt annað td hátt matarverð.

Knús á þig Milla mín

Helga skjol, 23.4.2008 kl. 14:50

5 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Hvenær fer þessu öllu saman að linna?

Knús!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 23.4.2008 kl. 15:09

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sammála þér Helga mín

Róslín mín þessu linnir aldrei held að við séum svo reið, en aldrei verður hægt að afsaka ofbeldi.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 23.4.2008 kl. 15:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband