Ekkert skrýtið að maður sé ælltaf veikur.

Guð ég sem hélt að allir væru svo þrifalegir heima hjá mér að
ekki væri um neinar bakteríur að ræða á mínu takkaborði.

Nei í alvöru, Auðvitað spritar maður takkaborðið reglulega
þau verða nú svo rykug og skýtug svona sér í lagi þegar
barnabörnin eru búin að fá að fara aðeins í tölvuna.

En svo má maður ekki vera of þrifin, sumir sérfræðingar segja að
við séum að þvo á okkur veikindin.


mbl.is Fleiri sýklar á lyklaborði en klósettsetu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ég mæli með að fara með tangstöngli á milli takkanna, ótrúlegt af ryki sem maður finnur þar!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 2.5.2008 kl. 14:23

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já ég hef verið að nota tannbursta og saumavélakústinn litla.
Er svo ekki bara í lagi að hella spritti yfir allt saman?, Djók.
                        Knúsi knús
                           Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 2.5.2008 kl. 15:20

3 Smámynd: Huld S. Ringsted

Eftir að ég lærði sýkla og bakteríufræði þá minnkaði ég til muna þrif, sérstaklega með sterkum efnum. Ofþrif trufla bakteríuflóruna í kringum okkur.

Huld S. Ringsted, 2.5.2008 kl. 15:21

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Það er rétt hjá þér Huld, og ég til dæmis kaupi aldrei sterk efni,
Nota oft bara handsápulög og er hann líka góður á bletti í fötum.
                           Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 2.5.2008 kl. 15:30

5 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ég er aldrei veik, kannski því ég einnota tölvuna!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 2.5.2008 kl. 15:39

6 identicon

Hæ HÆ.

Ég er hætt að nota sápur nema á gler (rúður utan og innan )nota ég lopasápu og borðedik.

Og á gólfin parketið og flísa  nota ég borðedik í vatnið  ekki smá flottar

flísarnar og parketið  á eftir  á wc nota ég líka borðedik .

Á lyklaborðið vatn með borðedik og tannbursta og örtrefja klút

                          

Vallý (IP-tala skráð) 2.5.2008 kl. 15:53

7 Smámynd: M

Sá í sjónvarpsþætti umræðu um sýkla. Þá eru handtöskur (veskin) okkar víst allsvakalegar.

M, 2.5.2008 kl. 17:38

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ó guð minn já handtöskurnar, og nú verð ég að fara að ryksuga
takkaborðið Hallgerður mín.
Rósin mín þú sleppur vegna einokunar.
Vallý mín kona, ég nota nefnilega borðedik á tölvu og sjónvarpsskjáina, og nú verð ég að nota það á parketið og flísarnar,
verður þetta ekkert sleipt af edikinu?

Stelpur nú er það bara borðedikslyktin vaðandi um allt hús.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 2.5.2008 kl. 17:56

9 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Smá innlit elsku Milla frænka mín. Takk fyrir góð ráð, ég ætla sko að útbúa edikblöndu. Hef reyndar oft notað edik á gluggarúður en ég mundi ekki nota blönduna á fartölvuskjáinn, kannski bara á gamla sjónvarpið.

Verð að passa fæturna, má ekki sitja of lengi, en það geri ég alltaf þegar ég byrja hér að lesa. Hef eitthvað lítið að segja er samt byrjuð að hjóla á nýja hjólinu, verð að fara voða varlega, kann ekkert á svona 'lady' hjól og í ræktinni eru þau föst  og hugurinn frjáls til að fara víða. Verð að fara að tengja mig við jörð og muna að pússa allt draslið með ediki. Hafðu það yndislegt, knús og kveðja eva

Eva Benjamínsdóttir, 2.5.2008 kl. 22:43

10 identicon

Nei það verður ekki sleipt ´

þú lætur 2 tapa af edikinu í vatnsfötu

Vallý (IP-tala skráð) 3.5.2008 kl. 00:11

11 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Kæra Eva mín mikið ertu dugleg og til hamingju með nýa hjólið.
Tengdu þig hið bráðasta, það er nauðsynlegt.
Og koma svo með edikið út um allt.
Knús á þig kæra frænka.
Þín Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 3.5.2008 kl. 06:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.