Ekki í fyrsta skipti.

Það væri þá ekki í fyrsta skipti sem kirkjan reyndi að
fara í feluleik með málefni sem gerast innan hennar.

Það er nú einhvernvegin þannig að þegar uppi hefur
verið orðrómur um mál í áraraðir á mörgum stöðum,
svo kemur kæra, ber þá ekki að rannsaka það niður í kjölinn.
Jú það á að gera það og ekki með neinum vettlingatökum
þó svo að gerandinn, eigi að vera fyrirmynd alls fólks
og teljist æðri.

Vona ég að þetta fari allt á besta veg fyrir stúlkurnar.

Allir verða líka að sætta sig við hvernig fer fyrir mönnum sem
taka ekki ábyrgð á gjörðum sínum.

mbl.is Fagráð ræddi ekki við meintan þolanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tiger

  Já Milla mín. Sumar stéttir virðast standa við bak síns fólks alveg sama hvað á gengur. Of oft sem krimmar komast upp með smá skömm í hattinn fyrir alvarleg brot - bara vegna þess að mál þeirra er leyst innan stéttarinnar. Allir eiga skilyrðislaust að axla ábyrgð á gjörðum sínum og taka út viðeigandi refsingu - alveg sama hvaða brot á í hlut eða hver framdi það - lögbrot er lögbrot!

Knús í daginn þinn mín kæra og eigðu yndislega helgi!

Tiger, 9.5.2008 kl. 16:06

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Je! je! sammála fólk á að bera ábyrgð á sínum gjörðum, og þegar gjörningurinn er á þennan veginn þá er hann orðin glæpur.
                             Eigðu góða helgi Tiger míó
                                Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.5.2008 kl. 16:14

3 Smámynd: Brynja skordal

Hvað er ekki svona um klukkutími að keyra á Húsavík frá akureyri? og er ekki renni færi þangað mörg á síðan ég hef komið þangað aldrei að vita nema við fáum okkur bíltúr þangað ef tími gefst til á sunnudeginum jújú ég myndi leita þig uppi skrifa heimilisfangið á minnismiða

Brynja skordal, 9.5.2008 kl. 16:24

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Já Milla, við vonum það besta svo sannarlega.  Eigðu ljúfa helgi Mother's Day Basket

Ásdís Sigurðardóttir, 9.5.2008 kl. 16:30

5 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Allir eiga að bera ábyrgð á eigin gjörðum, þú veist hvað ég meina

Eigðu góða helgi með englinum þínum, það er svo gott að eiga einn svoleiðis, en þeir eru ekki á hverju strái

Kæmpe knus til þín bestust

Kristín Gunnarsdóttir, 9.5.2008 kl. 16:52

6 Smámynd: Erna

Sammála þér eins og venjulega. Búinn að vera dugleg í þrifum í dag en ég notaði ekkert edik, ég var búnn að kaupa það en kann ekkert að blanda það og þorði því ekki að nota það . Þú kannski lætur mig vita hlutföllin við tækifæri .Góða helgi Milla mín í snjónum.

Erna, 9.5.2008 kl. 17:28

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Verið bara velkomin Brynja mín, ævilega.
               Knús Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.5.2008 kl. 19:08

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Erna mín þú situr 3 tappa af ediki út í 5l af vatni Gísli moppaði allt í morgun með þessari blöndu allt er einhvernvegin tærara.
Knús til ykkar Erna mín, er engin snjór hjá ykkur?.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.5.2008 kl. 19:11

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Kempeknus tilbage til dig ock ha det gott om helgen.
                     Dín venn Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.5.2008 kl. 19:14

10 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sömuleiðis Ásdís mín Mother's Day Basketknús kveðjur Milla. 





Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.5.2008 kl. 19:16

11 Smámynd: Erna

Takk Milla mín  ´jú það er snjór hér , fór út í garð og klippti nokkrar páskaliljur sem voru hnípnar í snjókomunni ætla að leifa þeim að brosa hérna inni.

Erna, 9.5.2008 kl. 19:29

12 Smámynd: Huld S. Ringsted

Það hefur greinilega verið illa að málum staðið hjá kirkjunni. Ég fæ á tilfinninguna að kirkjan sé ríki innan ríkisins með sínar reglur

Huld S. Ringsted, 9.5.2008 kl. 20:13

13 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sama hér, knús til ykkar
                  Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.5.2008 kl. 21:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband