Skildu þeir beita táragasi, eins og 1949?.

Fólki smalað í mótmæli á Austurvelli í fyrramálið,
það verður spennandi að sjá hvað þegnar þessa lands gera,
taka þeir þátt, eða láta þeir vanvirðinguna fótum sér troða
aftur og aftur.
Ég hvet alla að mæta á Austurvöll, það er komin tími á
að menn fari að skilja að við erum ekki greindarskert.

En skildi það fara svo, eins og í mótmælunum 1949, að
þeir finndu sig knúna til að beita táragasinu á fólk,
NEI! kæru landsmenn allir verða að sýna kurteisi.
Er það ekki annars?.


mbl.is Boða fólk á Austurvöll til að mótmæla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Hvað á að gera ef einhver hluti þessa hóps sýnir ofbeldi? Bjóða þeim í nefið?

Gunnar Th. Gunnarsson, 14.5.2008 kl. 10:58

2 identicon

Ég vil einmitt ekki að menn haldi mig greindarskertan. Því dettur mér ekki í hug að mæta. Góða skemmtun.

Baldur Jón (IP-tala skráð) 14.5.2008 kl. 10:59

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sömuleiðis Búkolla við yrðum góðar saman.

Það væri ráð að bjóða í nefið, það er nú gamall og góður siður,
og tíðkaðist afar hér áður og fyrr, bjóða upp á staup og í nefið.
Gunnar hver ætli svo sem að vera með ofbeldi?.

Baldur þú segir góða skemmtun, því miður bý ég ekki í Reykjavík
þegar svona ber undir, en í annan tíma mundi ég eigi vilja búa í
borginni, þó ég sé fædd þar og uppalin.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.5.2008 kl. 11:12

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sömuleiðis Sigga mín

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.5.2008 kl. 12:21

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þetta verður örugglega athyglisvert.  Verð fjarri góðu gamni eins og þú   You Go Girl 

Ásdís Sigurðardóttir, 14.5.2008 kl. 12:35

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ertu kannski að koma norður?, nei bara spyr.
             Knús á þig snúllan mín
                 Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.5.2008 kl. 12:37

7 identicon

Ég myndi mæta ef ég væri stödd í borg óttans. Vona bara að allir verði með ró og spekt og yfirvegaðir, það á líka við um lögregluna. Að fara nú ekki að koma með táragasið og öskra; Gas! Gas! Gas!

Eigðu góðan dag, Milla mín, kær kveðja, Ásdís Emilía. 

Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 14.5.2008 kl. 13:20

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sömuleiðis nafna mín, eigðu góðan dag.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.5.2008 kl. 13:22

9 identicon

Ég mæti ef ég verð svo dugleg að vakna snemma og keyra í bæinn er í sveitinni núna. Vona bara að ég lendi ekki í gasi því ég er að fara í óvissuferð með vinnufélögunum á morgun. Við vorum reyndar að tala um það um helgina hvort við ættum að byrja óvissuferðina niður á Austurvelli.

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 14.5.2008 kl. 13:51

10 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Langbrókin mín gamanið er gagnkvæmt, og svo er mér annt um hag allra landsmanna, er nú einu sinni fædd og uppalin í hinni gömlu góðu Reykjavík, og man eftirstríðsárin og fátæktina sem þá ríkti.
Ekki lenti mitt fólk í henni fátæktinni, en var alin þannig upp að ég hef andstyggð á þeim sem níðast á öðrum.
                           

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.5.2008 kl. 15:45

11 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já mér finndist það alveg upplagt að byrja ferðina á austurvelli.
Góða skemmtun í óvissuferðinni.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.5.2008 kl. 15:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.