Kann að hafa valdið, en hvað vitum við?

Það er eins og ég hef oft sagt bæði í máli og riti,
hvað vitum við um undur og hamfarir alheimsins?
Ekki neitt miðað við það sem gerist og við eigum ekki svör við.

Það er alltaf eitthvað að gerast óraunverulegt, og óhugnanlegt
sem engin getur svarað með neinni vissu hvað var.
Svo er það þannig að engin svarar eins og það hefur svo oft komið
í ljós að hik kemur á menn er þeir eiga að svara til um eitthvað.

Það eru allt of litlar rannsóknir framkvæmdar í heiminum yfirhöfuð,
og að sjálfsögðu verðum við aldrei alvitur á því sviði,
en ég er alveg viss um að allir þeir fræðingar sem vinna við það
sem viðkemur náttúrunni, hafi himinn og jörð,
mundu vilja fá meira fé til þessara mála,
Því það er svo mörgu ósvarað um undur veraldar.


mbl.is Jarðskjálfti kann að hafa valdið flóðbylgju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það er giska margt sem maður veit sko ekkert um. Í sambandi við að flytja á Húsavík þá er það fullreynt.  Hér ætla ég að vera ef guð lofar. Kær kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 5.6.2008 kl. 15:27

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Vissi það Ásdís mín þið eigið ykkar fólk fyrir sunnan,
við fluttum aftur á móti hingað vegna barnanna, lífið er alltof stutt til að vera ekki nálægt þeim.
                         KnúsMilla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.6.2008 kl. 16:09

3 Smámynd: Tiger

  Uss jájá .. Undur og stórmerki - það eru um allar jarðir að gerast eitthvað af og til sem aldrei verður útskýrt. Ef við hefðum svar við öllu þá væri heimurinn auðvitað mun betri að búa í - en við erum bara ekki Guðleg - bara mannleg - og því vitum við ekkert hvað er að grassera undir yfirborði jarðar, þannig séð.

Knús á þig mín kæra Milla og eigðu yndislegt kvöld.

Tiger, 5.6.2008 kl. 19:32

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Best er að vita sem minnst um hvað er að gerast, en mér finnast svona undur og stórmerki samt afar spennandi.
                       Knús Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.6.2008 kl. 20:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband