Höfundur
Tenglar
mbl.is
- Myndasíða Millu
- Pullip Myndasíða Sigrúnar og Guðrúnar
- http://123.is/641 Frábær síða gerð af bónda einum í Reykjadal.
- http://vf.is/ Suðurnesjablað
- http://245.is/ Sandgerðis fréttir
vinur
Fyrir svefninn.
31.7.2008 | 22:15
Hafið.
Hafið er blátt
um hljóðar nætur.
Djúpið blundar
við bergsins rætur.
Kyrrt sem örlög,
en aldrei breytast.
Blátt sem augun,
er ann ég heitast.
Það er svo margt,
sem marinn dylur.
Hver vík er breið,
sem vini skilur.
Köld er hjartanu
heimaströndin,
sem annarsstaðar
á óskalöndin.--
Hafið er blátt
um hljóðar nætur.
--Í lágnættiskyrrðinni
ljósið grætur--
En allri gæfu
þeir aldrei týna,
sem gefa djúpunum
drauma sína.
Þetta yndislega fallega ljóð er eftir
Magnús Ásgeirsson.
Góða nótt
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.3.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 831771
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslurnar
- Á móti þessari stúlku yrði ekki tekið á Bessastöðum
- Upphafinn Trump
- Herlaust Ísland kaupir skotfæri í stríði utan svæði NATÓs
- Flugvél dvelur á Hornafirði - stórtækur þjófnaður - gígur sem framleiðir kviku
- Óður til Akureyrar.
- Öflin að á bakvið tjöldin - Zelensky
- Forsetaframbjóðandinn. Að hjálpa fyrirtækjum
- Að gefa annarra manna fé.
- Herratíska : Lærisveinn Thom Browne með eigin hönnunn : KOZABURO
- Forsetaframbjóðandinn, Hver er ég ?
- Bæn dagsins...Pétur afneitar.
- Í tilefni af SKÍRDEGINUM sem að er í dag og fjallar um síðustu kvöldmáltíðina:
- Ástralir hefja rannsókn á umframdauðsföllunum
- Þvert á vilja eigendanna
- Í rykmekki
Athugasemdir
Góða nótt
Heidi Strand, 31.7.2008 kl. 22:17
Yndislegt GN
Ásdís Sigurðardóttir, 31.7.2008 kl. 22:19
Tært og djúpt hjá Magnúsi, ég elska hann.
Góða nótt elsku Milla frænka mín og góða helgi
Eva Benjamínsdóttir, 31.7.2008 kl. 22:28
Eigðu góða helgi Milla mín
Huld S. Ringsted, 31.7.2008 kl. 22:39
Fallegt, fallegt. - Góða nótt
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 31.7.2008 kl. 23:08
Góðan daginn allar skjóður mínar, já ljóðin hans Magnúsar Ásgeirssonar eru yndisleg, er eiginlega núbúin að uppgötva það,
þegar englarnir mínir á Laugum lánuðu mér handritaða litla bók sem þær rituðu sín uppáhalds ljóð í, þá las ég hann svona með áhuga.
Allir þeir sem eru að fara út úr bænum góða ferð og farið varlega
kæru vinir.
Hinir sem ekkert fara eru bara heimapúkar eins og ég,
mun ég sjá hér á blogginu, við munum hafa það skemmtilegt
ef ekki bara skemmtilegra en þeir sem eru að fjandast um vegi landsins.
Dóra mín sé þig á eftir.
Kærleik til ykkar allra og munið gangið hægt um gleðinnar dyr.
Ykkar Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 1.8.2008 kl. 07:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.