Velkomin til Íslands.

Ég býð þetta fólk hjartanlega velkomið til Íslands, vona ég
svo sannarlega að það venjist fljótt og vel, börnunum verði
vel tekið og að önnur börn hjálpi þeim til að venjast og leyfi
þeim að vera með.

Ekki má gleyma mæðrunum sem sitja heima er börnin eru farin
í skólann þá eru þær einar með sínum hugsunum og vita í raun
ekkert hvernig allt er, því það er svo nýtt.

Ég veit að þær fá stuðningsfjölskyldur og þær munu örugglega
standa sig sem best þær kunna.
Gangi ykkur bara öllum vel.
                                                Góðar stundir.


mbl.is Flóttafólkið brosti við heimkomuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulla Dan

Og ég býð það líka hjartlega velkomið.
Þetta hlýtur að vera svaklega erfitt fyrir þau og ég vona innilega að þau fái alla þá hjálp og aðstoð sem þau þurfa og íslenskukennslu frá degi eitt.
Hef tröllatrú á þessu.

Hulla Dan, 9.9.2008 kl. 08:55

2 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Óska þeim alls hins besta. 

Ía Jóhannsdóttir, 9.9.2008 kl. 09:00

3 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Tek undir heimkomuóskir þeim til handa

Sigrún Jónsdóttir, 9.9.2008 kl. 09:14

4 identicon

já auðvitað að bjóða þau velkomin, en hvað svo þegar frændurnir fara svo að koma í heimsókn og ærumorðin byrja, sjálfsmorðárásir eða eitthvað þaðan af verra ætliði þá líka segja verið þið velkomin hingað því fleiri því betra

snorri (IP-tala skráð) 9.9.2008 kl. 10:25

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk fyrir að taka undir gæoðar óskir þeim til handa.
Knús

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.9.2008 kl. 10:37

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Snorri hefur eitthvað svoleiðis gerst í þinni fjölskyldu?
Ekki í minni.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.9.2008 kl. 10:39

7 identicon

nei Guðrún það hefur ekki gerst í minni fjölskyldu sem betur fer og eigum við að sjálfsögðu að þakka fyrir aðstöðu okkar í þessum heimi þó held ég að við eigum til að gleyma því ansi oft og gleyma okkur í lífsgæðakapphlaupinu okkar, en það er mjög undarlegt ef fólk hér á landi haldi að það verði ekki vandamál hérna á okkar 'Isalandi vegna þessa fólks við getum nú bara opnað eyrun og hlustað hvernig þetta er í nágrannalöndum okkar svo sem Danmörku, Svíþjóð og Noregi.

afhverju eru t.d. ekkert af svona vandamálum í Færeyjum? maður spyr sig

snorri (IP-tala skráð) 9.9.2008 kl. 10:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.