Fyrir svefninn.

Það var árið 1909, sem sagt fyrir 100 árum sem þetta
gerðist.
Það var skipt um Ráðherra Íslands, Hannes Hafstein baðst
lausnar og samþykkti konungur það, í kjölfarið héldu þeir
utan forsetarnir Björn Jónsson, Kristján Jónsson og
Hannes Þorsteinsson til að ræða stjórnmálaástandið.

1/4 barst skeyti um það, að Björn Jónsson hefði hinn 30/3
verið skipaður ráðherra Íslands.

Auðvitað var undanfari að þessu, en fólk getur flett þessu
upp á netinu eða lesið um það í Öldinni okkar 1901-1930.

Þar með er nú eigi allt upp talið.

,,Landsbankafarganið"


Bankastjóra og gæslustjórum vikið fyrirvaralaust úr embætti.
22/6. Ráðherra hefur nú sagt Tryggva Gunnarssyni upp
bankastjórastöðunni við Landsbankann frá næstkomandi nýári.

Blöðin Lögrétta og Reykjavíkin deila harðlega á ráðherra fyrir
ákvörðun þessa.

23/11  Þau stórtíðindi gerðust stundu eftir hádegi í gær, að
Tryggvi Gunnarsson bankastjóri Landsbankans og
gæslustjórar hans, Eiríkur Briem og Kristján Jónsson, fengu
bréflega tilkynningu frá stjórnarráðinu um það, að þeim sé
samstundis vikið úr stöðum sínum við bankann ,,Sökum
margvíslegrar, megnrar og óafsakanlegrar óreglu í starfssemi
 þeirra í stjórn bankans og frámunalega lélegs eftirlits með
honum."  Lítilli stundu eftir að þetta bréf barst viðtakendum í
hendur, gengu þeir Klemens Jónsson Landritari og
Jón Hermannsson skrifstofustjóri inn í bankann og létu loka
honum í umboði ráðherra.
Öll afgreiðsla stöðvaðist í miðjum kafi. Skömmu síðar kom hin nýja
bankastjórn sem ráðherra hafði þá einnig skipað, til að taka við
forráðum bankans.
Voru það Björn kaupmaður Kristjánsson sem skipaður hafði verið
bankastjóri og gæslustjórarnir Karl Einarsson og Magnús
Sigurðsson.

Þetta tók ekki langan tíma, enda nefndi Lögrétta  þetta í fyrirsögn
Nýjasta hneyksli ráðherra.

Landsbókasafnið  við Hverfisgötu var einnig vígt þetta ár, en það er
nú önnur starfssemi fyrir höfð.

Sagan endurtekur sig þó eigi sé alveg í sömu mynd, en þó nokkuð
lík og þarna er auðsjáanlega verið að hyggja að sínum vinum

Góða nótt kæru vinir
HeartSleepingHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sagan er stöðugt að endurtaka sig.

Gegur alltaf í hring.

Man eftir kreppum 50, 60, 70,   þær virðast koma á 10 ára fresti

Gestur Gunnarsson (IP-tala skráð) 28.1.2009 kl. 20:11

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já þetta endurtekur sig ætíð, fannst bara skondið er ég fór að glugga í öldinni og rak augun í þetta fyrir 100 árum síðan.
Takk fyrir þitt innlit.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 28.1.2009 kl. 20:16

3 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Takk fyrir mig ljúfust.....

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 28.1.2009 kl. 20:23

4 Smámynd: Auður Proppé

Góða nótt Millan mín

Auður Proppé, 28.1.2009 kl. 21:42

5 identicon

Sagan geymir fordæmin.  Við lærum bara aldrei af þeim. Þetta var flott Milla. Grúskið borgar sig.  Hafðu það svo sem allra best og kveðja frá okkur hér.  Góða nótt.

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 28.1.2009 kl. 22:18

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Góða nótt Milla mín

Sigrún Jónsdóttir, 29.1.2009 kl. 00:39

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Linda mín ljúfust knús til þín
Milla.

Auður mín takk fyrir samtalið í gær og mailin.
Knús
Milla.

Já Einar grúskið er einnig gaman
Knús í daginn
Milla

Knús til þín elsku dóttir mín
Mamma

Sigrún mín ljúfa kona
knús til þín
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.1.2009 kl. 07:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband