Fyrir svefninn.

Jæja fæ víst frið til að setja inn eina færslu þær eru ekki
komnar heim mæðgur, við vorum í mat heima hjá Millu
og útbjuggu þær saman pizzur, systur og þær ekki af verri
endanum, mikið á og vel sterkar.

Kaffi, kókósbollur og buff á eftir þið vitið svona sem maður
kaupir blandað í kassa, þvílíkur vibbi svo ég fékk mér bara kex.

Í dag fóru tvíburarnir og afi að ná í Aþenu Marey á leikskólann
og var hún mikið glöð er hún kom hér heim með þeim.
Þegar þær fóru allar að versla fengum við okkur kaffi og hún mjólk
og ristað brauð.

Nú eru mæðgur komnar heim með tilheyrandi látum.
Og Neró minn alveg æfur af gleði.

                 ************************



                 

              Gamall Húsgangur:

           Sjálfs manns höndin hollust er.
           Hér er sönnun fengin.
           Lekanda úr lófa sér
           liðið hefur enginn.


Hinn kunni hagyrðingur Jón Bergmann
orti af gefnu tilefni:

           Karlmenn þola skammaskúr,
           skvetti þeir í sig tári,
           en konur mega taka túr
           tólf sinnum á ári.

Góða nótt kæru vinir
HeartSleepingHeart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erna

Flottar vísur  Hlakka til að hitta þig á morgun Milla mín og góða nótt

Erna, 27.2.2009 kl. 22:17

2 identicon

Það vantar ekki veislurnar á þessum bæ. Flott hjá ykkur. Frábærar vísur. Svo sannar. Aftur takk fyrir gærkveldið. Alveg rétt já, þú mættir kíkka inn á síðuna mínu, stóðst ekki mátið eftir ferðina, allt þér að kenna, svona óður til bæjarins míns. Svo aftur stopp. Farið þið vel með ykkur, kær kveðja héðan og góða nótt. p.s. ljóninu er aðeins að skána 7,9 og 13.

Einar Áskelsson (IP-tala skráð) 27.2.2009 kl. 22:40

3 Smámynd: Auður Proppé

Auður Proppé, 28.2.2009 kl. 00:08

4 Smámynd: Ólöf Karlsdóttir

Milla mín ég fékk ferðamála stólinn Knúsý knús ,Óla úr Gervahverfi

Ólöf Karlsdóttir, 28.2.2009 kl. 00:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband