Smá samantekt

Það er víst ekki til neins að vera óánægður með þó maður komist ekki allt sem maður vill, ekki komst ég í skjaldborgina í kringum sjúkrahúsið okkar í dag, var nefnilega hálf slöpp, svaf til 10 í morgun sofnaði svo aftur um 2 leitið og svaf til 5 svo ekki er nú orkan mikil, en það eru margir sem bíða eftir að komast á sjúkrahús veikari en ég.

Sölvi Steinn litli vinnumanninn minn á Kópab. varð 3 ára 6/10 og var haldið upp á það í dag, hér kemur mynd af honum.

vinnumann

Hann er sko vinnumann

Nú eins og allir vita þá var ég að flytja í aðra íbúð, og það hefur verið smá höfuðverkur að finna réttar gardínur fyrir eldhúsið, datt allt í einu í hug í fyrradag að hafa þetta svona sveitalegt og hér koma myndir af fyrstu tveim gluggunum, en þeir eru fjórir í röð.

100_9902.jpg

Smá haustlitir í leiðinni


100_9903.jpg

100_9904.jpg

100_9894.jpg

Litla ljósið mitt og Neró

Það koma svo fleiri myndir eftir því sem ég geri fínt hjá mér.

Knús og aftur knús til allra minna vina


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Gaman að fylgjast með hjá þér Milla mín, til lukku með litla manninn, fallegur drengur :)  Gangi þér vel með alla gluggana, þetta er góð byrjun, þetta kemur svo smátt og smátt.

Ásdís Sigurðardóttir, 11.10.2010 kl. 11:42

2 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

Bara flott..enda átti ég ekki von á öðru..Þú hefur alltaf haft svo fínt hjá þér..Já til hamingju með kútinn...Knús úr Heiðarbæ..Ekkert að elda núna..allir kallar í burtu:)

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 11.10.2010 kl. 11:45

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Knús til ykkar dúllurnar mínar og takk fyrir mig

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 11.10.2010 kl. 13:58

4 identicon

Gangi þér vel

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 12.10.2010 kl. 09:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.