Ljós í daginn

Já ef þessi frétt gefur ekki ljós í daginn þá veit ég ekki hvað, ég er eins og allir búin að fylgjast með síðan fyrsti maður kom upp, gleðin var mikil, en samt var ég svolítið kvíðin, hvað ef eitthvað gerist það gerðist ekki neitt og allir eru þeir komnir upp.

Megi góður guð hjálpa þessum mönnum og fólkinu þeirra til að ná sér eftir þennan ótta sem grípur alla sem í þessu lenda.

Til hamingju Síle


mbl.is Öllum bjargað upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þetta er það gleðilegast asem ég hef orðið vitni að í langan tíma.

Ásdís Sigurðardóttir, 14.10.2010 kl. 11:59

2 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Yndislegt ;-)

Jóhanna Magnúsdóttir, 14.10.2010 kl. 12:46

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

til ykkar

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.10.2010 kl. 16:59

4 identicon

Það hlýtur að vera ólýsanlegt að vera á staðnum þegar þeir hafa verið að koma upp. Ég er líka búin að hugsa mikið til þeirra og var sannfærð um að þeir myndu komast fyrr út úr prísundinni en áætlað var í upphafi. Það hefði ekki verið gaman fyrir þá að dúsa þarna niðri fram að jólum. En þetta eru miklar gleðifréttir það liggur við að maður sé með tárin í augunum bara við að sjá myndirnar.

Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 14.10.2010 kl. 19:19

5 Smámynd: Sigurbjörg Eiríksdóttir

já þetta er yndi!

Sigurbjörg Eiríksdóttir, 14.10.2010 kl. 20:15

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Satt með tárin í augunum, fólkið er svo einlægt og hamingjusamt.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 14.10.2010 kl. 21:51

7 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Þetta er eitt mesta björgunarafrek sögunnar þar sem reyndi ábyggilega mjög á þolrifin, bæði þeirra sem áttu þátt í björguninni sem og þeirra námuverkamanna sem biðu meira en tvo mánuði!

Mættum við Íslendingar ekki taka okkur Chilebúa okkur til fyrirmyndar í þeim björgunarleiðangri sem okkar ríkisstjórn er í? Hún á ekki sjö dagana sæla þessar vikurnar og jafnvel gengið svo langt að jafna saman orsök og afleiðingu bankahrunsins.

Við verðum að doka og sjá til. Einhvern tíma kemur skíma eftir langan og erfiðan vetur!

Góðar stundir.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 15.10.2010 kl. 00:29

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Blessaður Mosi, veistu, ég er svo sammála þér með björgunarafrekið í Chile það er stórkostlegt, en við höfum einnig sýnt hér í okkar landi að við getum staðið saman eins og ein manneskja er náttúruhamfarir steðja að, ég nefni nýleg dæmi eins og snjóflóðin í Hnífsdal og Flateyri já og gosið í eyjum þar sem allir björguðust, gæti farið alveg aftur í mína barnæsku til að rifja upp, en læt þetta duga.

Að mínu mati Mosi þá er ríkisstjórnin búin að fá sinn tíma og hefur ekki gert neitt til að bjarga þeim málum sem brýnust eru eins og að koma atvinnuveginum á fullt þá mundi fólk hafa peninga til að lifa, það mundi ekki hafa peninga til að borga af húsnæðislánum og þekki ég það afar vel hér í kringum mig.

Auðvitað látum við tímann líða og allt verður gott á endanum allavega hjá þeim sem ekki hafa misst neinn vegna ástandsins.

Að missa sína gleymist aldrei.

Góða helgi til þín

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 15.10.2010 kl. 08:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband