Endalaust.

Kannist þið við það? Sko ég er búin að vera í allan dag í einhverju smádútli,
þrífa ramma, glugga hengja upp gardínur í svefnherbergið,
engillinn þreif alla lista, allar skáphurðar þrifnar, hann er líka búinn
að taka til í öllu dóti sem er ekki alltaf verið að nota, nú aldrei þessu vant
henti hann fleiri kössum á haugana af dóti sem er aldrei notað,
sko ef maður ekki opnar kassa í eitt ár, þá þarf maður ekki að nota það
og bara hendir því. Reyndar fór hann nú í gegnum þetta allt saman.
Segi það enn og aftur, verð sko fegin þegar þetta er búið.
                              Góðar stundir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Án þess að gera lítið úr neinum þá held ég að þú sért besta og hlýjasta bloggvinkona mín. Takk fyrir alla þína hlýju og yndisleg komment. Þú ert örugglega ein þeirra sem ég mun reyna að hitta síðar...Mér þykir orðið svo innilega vænt um þig.

Þetta vildi ég segja þér mín kæra.

Ragnheiður , 2.10.2007 kl. 20:50

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Elsku Ragga mín, Þakka þér hjartanlega fyrir þín fallegu orð,
Mér þykir undur vænt um þig líka,
allt sem ég hef sagt kemur frá hjartanu,
og er það mjög auðvelt þegar maður finnur fyrir karma-tengingunni
sem ég tel að hafi myndast á milli okkar.
það er tenging sem kemur bara.
Þið eruð ávallt velkomin í heimsókn Ragga mín.
Ljós og orkukveðjur Þín Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 2.10.2007 kl. 21:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.