Steingrímur eigum við að svelta.???

Nei þessi stefnubreyting hefur engin áhrif á álver
við Húsavík. það hugnast þér ekki Steingrímur,
Hungrið er nú búið að steðja að nokkurn tíma,
hér á Húsavík og keyrir um þverbak núna,
á hverju eigum við að lifa.???
Það er að koma álver. Ekki nema þið komið því þannig til
leiðar að enginn stóryðju framleiðandi vilji ræða við okkur
vegna stöðugs andstreimis gegn öllu hér.
Eigum við öll að fara að lesa fjallagrös.???
mbl.is Áróðursbragð til andlitslyftingar eða raunveruleg stefnubreyting?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Steingrímur J og kommúnistahyskið verður seint talið marktækt.  Hver hefur gleymt því þegar Steingrímur vatt sér um landsbyggðina og lofaði Álver hér og þar, ætlaði að fá álver í hvert pláss.  Nú þykir það ekki lengur gott í kjósendahjörðina fyrir sunnan að vera með álverum og 101 pakkið sötrar sitt latté og Steingrímur hefur snúið sér í annan hring.  Kommarnir vita ekki hvað það er að draga björg í bú.  Ríkið á sér um sína, listamannastyrkir og annað eins kjaftæði.  Álver mun rísa fyrir norðan, Steingrímur er sem betur fer ekki við völd.  Kannski ættu hann og flokksbræður að minnka fjallagrasa reykingar og vakna.

Arnar (IP-tala skráð) 10.11.2007 kl. 22:11

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Þið þurfið að standa fast á ykkar þarna fyrir norðan og láta ekki telja úr ykkur kjarkinn. Vonandi fer allt vel hjá ykkur,

Kveðja frá Reyðarfirði

Gunnar Th. Gunnarsson, 11.11.2007 kl. 01:38

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk strákar fyrir góð og skemtileg skrif.

Nei, það hefur engin gleymt því þegar Steingrímur

var á orku fundi (að ég held) uppi í Mývatnssveit

og tjáði fundarmönnum það að hann mundi styðja við

að orkan á þessu svæði yrði notuð til orkufreks iðnaðar.

Það er hægt að lesa bókun þar að lútandi í

heimablaðinu okkar Skarpi.Fólk er fljótt að skipta um skoðun. Auðvitað kemur Álver ég hef aldrei efast um það.

Gunnar, það er kominn tími til að fólk hætti að missa kjarkinn,og krefjist réttar síns í þjóðfélaginu, vegna þess að við erum þjóðfélagið.

Kveðja frá Húsavík.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 11.11.2007 kl. 08:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband