Hvað er að gerast.

Mér stendur nú ekki á sama um veðrið og náttúruna.
Það er allt að gerast á röngum tíma, óvenjumiklar rigningar
svo úr verða flóð og aurskriður, sem hafa ekki valdið
slysum eða öðru verra, sem betur fer, síðan er það Hvítá
sem er orðin athyglissjúk, blessunin, og allir skjálftarnir
sem eru búnir að vera, að ég held nokkuð margir á
undanförnum mánuðum.
Segji nú ekki annað en það,
að kæru máttarvöld eruð þið nokkuð búin að gleima,
að það er ekki komið vor, það er bara desember núna,
og gefðu okkur nú frið á jólum.
.Takk fyrir mig.
mbl.is Vatnavextir í Hvítá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ofsóknir mannanna valda loftslagsbreytingum og meiri sveiflum og breytingum í veðurfari.  Gjörðir mannanna eins og það að klessa risastóru lóni á viðkvæmt, lifandi svæði (Kárahnjúkar) hlýtur að valda einhverju eins og jarðskjálftum eða jarðhræringum. Við erum ennþá bara svo sjálfhverf að við áttum okkur yfirleitt ekki á ábyrgð okkar í þessum heimi.

Helena (IP-tala skráð) 20.12.2007 kl. 10:28

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Daginn sjálf hressa kona, er ætíð vöknuð snemma,

vona að þú sért sannspá, sko þetta með vorið, en held samt að við eigum eftir að fá einhvern vetur,

þá meina ég með snjó og öllu, ég ætla ekki neitt að vera leiðinleg, en held að þetta sé staðreynd.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 20.12.2007 kl. 14:03

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Blessuð Helena, ofsóknir mannanna, ég get nú ekki

séð að það séu ofsóknir að vilja hafa atvinnu.

Hræringa og jarðskjálfta höfum við haft frá alda öðli. Tel okkur ekki vera sjálfhverf,

heldur vill ég kalla okkur víðsýnnt fólk.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 20.12.2007 kl. 14:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband