Hverjir eiga að fjúka?

Það hefur ekki tíðkast hér á voru fróni að ráðamenn
bæru ábyrgð á gjörðum sínum og þeir þykjast yfirleitt ekkert gera
og skilja yfirleitt ekkert í því írafári sem verður út af  málum
sem  að þeirra mati var ekkert athugavert við.

Ég hélt að borgarstjórn væri kosin til að sinna málum borgarinnar
á sem hagkvæmasta hátt sem hægt væri,
en eitthvað gerðist þarna, sem við fáum aldrei að vita allan
sannleikann í.

Eitt er víst, að feluleikur verður að hætta,
tilkynninga-skyldan upp á borðið,
Engin á að vera einráður,
Borgarstjórn er stjórn samvinnu.

Og spurn er mér sem ekki veit neitt, hver á að fjúka, ef einhver fýkur.
                                 Góðar stundir.


mbl.is Umboð borgarstjóra verður tekið til skoðunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Er ekki best að fá bara algjörlega nýtt fólk í borgarstjórn.Kveðja norður til þín.

Ásdís Sigurðardóttir, 8.2.2008 kl. 16:00

2 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Sammála Ásdísi Milla mín, nema ég vil að við fáum að kjósa þessa hottentotta burtu og koma lýðræðislegu stjórnskipulagi að á ný

Eva Benjamínsdóttir, 8.2.2008 kl. 17:41

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Stelpur er alveg sammála þessu, það gengur alltaf meira og meira aftur og fram af mannihafi það.
Ég þoli ekki svona aulapúka sem fara að grenja í sjónvarpinu að því að þeir vorkenna sjálfum sér svo mikið.
Svo er ekki gott að hafa góðan talanda, eins og Svandís,
maður þarf að standa með sjálfum sér.
                          Baráttukveðjur fyrir réttlæti á
                          öllu landinu.Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.2.2008 kl. 18:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband