Fyrir svefninn.

Sr. Jóhann Þorkelsson talaði einu sinni sem oftar
 milli hjóna hér í bænum að ósk konunnar.
Þegar hann kemur inn til þeirra, eru þau að hnakkrífast,
og segir húsbóndinn, að hann hafi ekkert hér að gera,
og vísar honum á út.
Sr. Jóhann hrökklast til dyra, en snýr aftur og segir:
,, Má ekki bjóða ykkur brjóstsykur?"
Hjónin litu hvert á annað, þáðu brjóstsykurinn
og hófu síðan sáttaumleitanir.

Vísa eftir Andrés prest Hjaltason, kveðin á kosningafundi
á Brjánslæk vorið 1850, þegar sýslumaður Brynjólfur Svenzon
hafði flutt ræðu nokkra til kjósenda og þótti
halla málum til vinsælda við Dani.

                          Valdsmannsræðan enduð út
                          embættis á þönum
                          Ísland reyrði rembihnút
                          rassinn við á Dönum.

                                               Góða nótt.Sleeping


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heidi Strand

Séra Jóhann hefur verið snjall. Góða nótt.

Heidi Strand, 17.2.2008 kl. 20:42

2 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Góða nótt Milla mín

Guðborg Eyjólfsdóttir, 17.2.2008 kl. 20:53

3 Smámynd: www.zordis.com

Þú ferð snemma í háttinn .... takk fyrir innlitið á mína síðu!

Þú spyrð hvort ég sé að gera myndirnar og svarið er já! 

Sweet dreams!

www.zordis.com, 17.2.2008 kl. 20:58

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk fyrir innlitin snúllur, þið eruð frábærar.
                      Kveðja inn í góðan dag.
                              Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.2.2008 kl. 07:27

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Zordís takk fyrir svarið, ég fer nú kannski ekki alltaf að sofa,
er ég rita fyrir svefninn, en yfirleitt fer ég snemma upp í rúm
þarf bara á því að halda, en myndirnar þínar eru æði.
                              Kveðja Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 18.2.2008 kl. 07:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.