Hlýtur að koma að því.

Hlýtur að koma að því, en ekki endilega núna.
50 % líkur tjáir Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur okkur,
Náttúruhamfarir eins og gos, hugnast manni aldrei.
Þar sem ég bý, hefur landslagið víða skapast af gosi,
ægifagurt er að aka um og skoða, t.d. Hljóðakletta, Ásbyrgi,
upp með Jökulsánni  að Mývatni, Dimmuborgir og þar um kring,
enda í Aðaldalshrauninu, bara svo eitthvað sé talið upp. 
Allt þetta svæði, skópu eldgos fyrir X mörgum árum síðan,
og hvílir dulúð yfir landshlutanum.
Stórmögnuð og virðingafull eru eldgos svo framarlega sem þau
valda ekki mannsskaða.
                                         Góðar stundir.
mbl.is Helmingslíkur á eldgosi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Auðvitað eiga eftir að koma gos.  Sennilega

Hólmdís Hjartardóttir, 4.3.2008 kl. 08:08

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

fljótlega.

Hólmdís Hjartardóttir, 4.3.2008 kl. 08:09

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Almáttugur afhverju fór færslan í tvennt    Kveðja Húsvíkingur

Hólmdís Hjartardóttir, 4.3.2008 kl. 08:11

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk fyrir innlitið Hólmdís.
Er nú reyndar ekki Húsvíkingur, en er búin að koma hingað í 45 ár
búa hér í 3 ár, og nýt þess í botn.
                       Kveðja Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 4.3.2008 kl. 08:15

5 Smámynd: Huld S. Ringsted

Þessi svæði sem þú telur upp finnst mér þau fallegustu á landinu, sérstaklega Hljóðaklettar, hugsaðu hvað eru margir Íslendingar sem hafa aldrei komið þangað, vita ekki einu sinni af þessu svæði!

Huld S. Ringsted, 4.3.2008 kl. 10:28

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Móðir kær er þið komið norður þá endilega komið í heimsókn,
heimili mitt er ekki heilagt, Huld satt segir þú með staðina það er hægt að fara endalaust og skoða þessa fegurð,
og hlaða batteríin eins og ég geri, svo er hægt að fá sér kaffi í Millubæ.
                        Knús á ykkur Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 4.3.2008 kl. 11:41

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já auðvitað hvenær, ekki spurning.
                   Kveðja.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 4.3.2008 kl. 19:19

8 Smámynd: Árni Gunnarsson

Við Íslendingar erum raunsæ þjóð.

Það er ekkert til sem heitir náttúrufegurð.

Aðeins mismunandi mörg gígavött í ásýnd þessa lands.

Eldgos eru nauðsynleg til að minna okkur á alla þá ónýttu orku sem þetta land geymir og bíður eftir Athafnamönnum. 

Árni Gunnarsson, 4.3.2008 kl. 23:52

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Árni, mundi nú ekki vilja kalla fegurð okkar lands gígavött,
það er svo kalt.
Athafnamennirnir gleyma nú seint einhverju sem þeir geta grætt á,
enda er nú ekki nauðsynlegt að hafa atvinnu fyrir fólkið í
landinu.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.3.2008 kl. 06:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband