Höfundur
Tenglar
mbl.is
- Myndasíða Millu
- Pullip Myndasíða Sigrúnar og Guðrúnar
- http://123.is/641 Frábær síða gerð af bónda einum í Reykjadal.
- http://vf.is/ Suðurnesjablað
- http://245.is/ Sandgerðis fréttir
vinur
Fyrir svefninn.
4.3.2008 | 20:51
FRAMHALD: Sögur af Vilhjálmi bónda á Stóra Hólmi í leiru.
Vihjálmur var illa við, að synir hans eyddu spariskildingum
sínum í óþarfa.
Einu sinni fóru þeir með föður sínum til Keflavíkur.
Þeir höfðu keypt sér þar rúsínur og voru að pukrast með
að éta þær á leiðinni heim.
,, Hvað eruð þið að éta, strákar?" spyr faðir þeirra.
,, Rúsínur", segja þeir.
,, finnst ykkur það ekki vera dýrt skepnufóður?"
Segir þá Vilhjálmur.
SR. Jón Skagan hætti prestskap og tók upp annað starf.
Þá var kveðið:
Skaust úr leik við skaparann,
skitnar ræður hætti að krota,
þegar í fjandanum fleygði hann
Flíkinni, sem hann hætti að nota.
VONGLÖÐ.
Gleðisjóinn geyst ég fer,
þó gutli sorg und kili.
Vonina læt ég ljúga að mér
og lifi á henni í bili.
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.4.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslurnar
- Ætti að banna Spotify og aðrar streymisveitur tónlistar til að auka tekjur tónlistarfólks aftur af plötusölu?
- Gestapómenning í skjóli öryggis
- 4Chan verður sárt saknað
- 800 milljarðar gefnir Eimskip, Samskip og Sægreifunum
- Hvernig gat þetta gerst?
- Leikhús fáránleikans. Hver vill búa þar?
- Fyrri hluti apríl 2025
- Þjóðaröryggi Íslands fórnað fyrir stríðshagsmuni Evrópu ...
- Fleiri á móti því að íslenskur her verði stofnaður
- Heilagir hundar, perlur og svín
- Sérstakt hjá Þorgerði
- Einhverfufaraldurinn
- UM ÁSTAND LEIGUBIFREIÐA.......
- Vegið að námsárangri
- Anna frænka á Hesteyri í fasteignabraski
Athugasemdir
Góða nótt elsku Milla mín
Róslín A. Valdemarsdóttir, 4.3.2008 kl. 20:57
Hehehe æj ég elska þessar færslur þínar
Ragnheiður , 4.3.2008 kl. 21:49
Góða nótt Milla.Ég vaki í nótt er að fara á næturvakt
Kíki á þig í fyrramálið.Kveðja.
Erna, 4.3.2008 kl. 22:33
Góða nótt Milla mín allaf jafn skemmtilegar kvöldsögurnar þínar
Guðborg Eyjólfsdóttir, 4.3.2008 kl. 23:45
Tiger, 5.3.2008 kl. 00:05
Þið yljið manni í morgunsárið, synd að segja annað, enda eruð þið
ég meina sko fólk, sko hann Tiger er svo mjúkur og flottur að, en haltu því bara áfram snúður minn það á svo
frábærar konur ups! ææ,
vel við mig. Skrifin þín snerta ætíð strengi.
Kærleikskveðjur til ykkar allra
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.3.2008 kl. 06:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.