Erum við í 1001 nótt, eða hvað.

Ef maður vissi ekki betur, hvað er annars að vita betur?
Það er spurningin: ,, Erum við í 1001 nótt,
eða í því sem við teljum raunveruleika?"

Winehouse tekur Vodka í nefið, hægan! rennur það ekki
sömu leið og í gegnum munn?
Kannski hefur það ekki sömu áhrif, já gæti verið.

Vændi á netsíðu, ekkert hægt að gera nema ef þriðji
aðili hefur gróða af vændinu, eða hvað, skil ekki alveg,
enda ekki von, trúlega alveg græn í siðferði nútímans.

Vill nefna soninn nafni eftirlætis-Bjórnum,
Það er náttúrlega ekki í lagi með sellurnar í þessu fólki,
eða eru það kannski mínar sellur sem þurfa viðgerðar við.

Clinton og Obama, saman í framboð tjáir Clinton okkur,
Obama segir ekki orð.
Verður spennandi að sjá hvað gerist.

Hver á svo að segja til um hvort er réttara,
raunveruleikinn eða 1001 nótt.
Það er kannski best að fara milliveg, þá er maður
viðræðuhæfur á öllum vígstöðum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Vodkinn á víst að fara beint út í blóðrásina ef hann tekinn í nefið, hún er greinilega að flýta sér að verða drukkin, það er nú ekki öll vitleysan eins og að nefna barnið sitt bjórnafni er alveg hreint til háborinnar skammar og hana nú

Guðborg Eyjólfsdóttir, 8.3.2008 kl. 11:57

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Það er eins og ég segi Guðborg mín, allt er hringlandi vitlaust
í kringum okkur. hvernig er heilsan?
                            Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.3.2008 kl. 12:00

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Æ þetta fólk. Ekki veit ég hvort ég nenni að vorkenna því, örugglega allt saman gert fyrir athygli. Að skíra barnið sitt eftir bjór, já það vantar einhverjar margar heilasellur í þannig fólk. Að Amy taki vodka í nefið, hún mun ekki bjargast úr þessu öllu saman ef hún hættir ekki að vera svona vitlaus.
Vændi á netsíðu er frekar sorglegt, allavega finnst mér það, og eflaust svo mörgum öðrum. Athyglissýkin í hámarki, þeir sem stunda vændi fyrir sig sjálf, það vantar mikið af heilasellum í svoleiðis fólk!

Knús

Róslín A. Valdemarsdóttir, 8.3.2008 kl. 12:03

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sammála þér snótin mín, og ekki vorkenni ég þessu fólki,
                           Kveðja Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.3.2008 kl. 12:13

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Það er orðið slæmt þegar ekki er hægt að drekka nógu hratt.  Kær kveðja til þín Milla mín  Pink  Pink Pink  Pink Pink Pink  Pink Pink  Pink Pink 

Ásdís Sigurðardóttir, 8.3.2008 kl. 13:16

6 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Ég er sammála Róslín.

Kær kveðja til þín Milla mín

Kristín Katla Árnadóttir, 8.3.2008 kl. 14:16

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já það er orðið slæmt er maður er farin að efast um að maður sé normal nei ég segi bara svona.

                     KveðjurMilla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.3.2008 kl. 14:37

8 Smámynd: Huld S. Ringsted

Æ Milla mín, það virðist alltaf verða til meira og meira af rugluðu fólki í heiminum

Huld S. Ringsted, 8.3.2008 kl. 15:27

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þúsund og ein nótt bliknar við raunveruleika dagsins í dag elskuleg.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.3.2008 kl. 15:49

10 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já það er rétt hjá ykkur snúllur mínarMilla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 8.3.2008 kl. 16:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband