Tilkynningaskyldan segir frá.

Er ekki annars tilkynningaskylda?, hélt það.
Við gamla settið erum að fara að Laugum,
Í gærkveldi vorum við í pepparóní pasta og hvítlauksbrauði
að sjálfsögðu frá bakaríinu við brúnna á Akureyri,
Það er besta brauð norðan heiða, það buðu þau upp á
Milla mín og Ingimar.
í kvöld verðum við öll saman í svínakjöts, einhverju hjá
Dóru og snúllunum og ef ég þekki það rétt verður það
ekki af verri endanum.

Annars var ég að vakna sofnaði smá eftir matinn og var
ekki einu sinni búin að fara í sturtu, en varð aðeins að sinna
uppáhaldinu mínu blogginu og vinum mínum þar.
Elska ykkur öll kærleikskveðjur Milla.InLove


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Namm Góður matur ég ætla að hafa lambahrygg í kvöld. Skemmtið ykkur vel í kvöld kæra Milla mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 9.3.2008 kl. 14:05

2 Smámynd: Huld S. Ringsted

Sammála þér með brauðið frá þeim, hrikalega gott!!

Við ætlum í hálfgerðan jólafílíng hérna og hafa Hamborgarhrygg í matinn

Eigðu góðan dag Milla mín

Huld S. Ringsted, 9.3.2008 kl. 14:45

3 Smámynd: Erna

Að sjálfsögðu Milla mín er skylda að láta vita af sér við gætum nú farið að undrast um þig og hafa áhyggjur ef ekki birtist reglulega blogg frá þér.Sammála þér með brauðið frá bakaríinu við brúnna það er himneskt.Kveðja til allra í svínakjötseitthvaðveislunni .Er að fara í vinnuna á kvöldvakt og vonandi fæ eitthvað gott að borða þar.

Erna, 9.3.2008 kl. 16:30

4 Smámynd: Tiger

  Oh mæomæ.. Það er endalaust gott að fá sér pasta með skinnku eða kjúkling og hvítlauksbrauð, *slurp* - létt en svo hrikalega gott. En sko, þú hefur ekki bragðað brauðin mín - fiðurmjúk og bragðgóð með eindæmum *flaut*. Nýbakað brauð er eitt af því sem alltaf getur kitlað bragðlaukana. Kannski getur Millan þín og Ingimar boðið uppá besta brauðið norðan heiða, en ég get sko framleitt það besta sunnan .. *glott*.

 Love Letter Ójá, bloggvinir og bara bloggið er nauðsynlegt inn í daglega rútínu.. en ótrúlegt hvað þetta getur verið mikill tímaræningi... Maður getur samt ekki annað en litið inn af og til yfir daginn (nóttina oftast hjá  mér þó)... Lot´s of love over to you!





Tiger, 9.3.2008 kl. 17:24

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Varst þú á Laugum Hallgerður?, hvaða ár?, stelpurnar mínar voru allar á Laugum.             Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.3.2008 kl. 19:51

6 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Tiger sko þau Millan mín of Ingimar buðu upp á brauðið sem var keypt í Bakaríinu við brúnna á Akureyri,þú verður að fara þangað er norður þú kemur.
okay þú ert semsagt bakari og líka bílstjóri, nei þarft nú ekki að svara því, en gætir nú sent manni sunnanbrauð.
Ég gæti sent þér ávaxtabrauðið mitt sjúklega gott.

Matseðilinn hjá Dóru minni í kvöld var, svínakjöt í litlum bitum velt upp úr kryddblöndu og djúpsteikt, með hrísgrjónum, kartöflum
steiktum í bitum í ofninum og heimatilbúin Bernes.
Þetta var æðislegt.

Já er sammála að bloggið tekur tíma, en þetta er svo yndislegt og gefur manni svo mikið, og svo hef ég allan tíma sem ég þarf,
er svo lánsöm, í óláninu að vera sjúklingur, og heima allan daginn.
Lot´s of love over to you to.Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.3.2008 kl. 20:11

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

það hefði nú verið gaman að hafa ykkur með, en það verður með vorinu.        Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.3.2008 kl. 20:12

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Já Huld við förum alltaf í bakaríið við brúnna að fá okkur kaffi og brauð með, þegar við förum til Akureyrar, svo er verslað mikið og sett í frost.
Það eru afar góð matarbrauð hér hjá okkur, en það vantar sérbrauðin, svo ég tali nú ekki um ostana ég elska þessa osta.
Hamborgarahring já ég á nú víst svoleiðis í kistunni, kannski hef ég hann um páskana. Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.3.2008 kl. 20:19

9 Smámynd: Brynja skordal

Namm verði ykkur að góðu og njótið vel knús

Brynja skordal, 9.3.2008 kl. 20:20

10 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Katla við erum komin heim, við borðum alltaf kl. fimm þegar við hittumst svona um helgar þá eru börnin ekki orðin þreytt,
við gamla settið vorum komin á staðinn um þrjú leitið,
svo er bara setið og spjallað. Lambahringur stendur alltaf fyrir sínu.
                         Kveður  Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.3.2008 kl. 20:23

11 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Takk Einar, það smakkaðist líka vel.    Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.3.2008 kl. 20:24

12 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

takk sömuleiðis Brynja mín. Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.3.2008 kl. 20:26

13 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Við hvaða brú, verð að vita það áður en ég skrepp norður.  Verði þér að góðu allur þessi veislumatur mín kæra.  Krúttkveðja Segðu mér aftur hvar þú býrð.

Ásdís Sigurðardóttir, 9.3.2008 kl. 20:50

14 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Bakaríið við brúnna er bakaríið ofan við Glerártorg.
Ég á heima á Stórhól 51 verið þið velkomin Ásdís mín,
hvenær komið þið?.
                                 Knúsý Kveðja Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 9.3.2008 kl. 21:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.