Fyrir svefninn.

Bergur hét karl einn á Eyrarbakka og var
kallaður dati. Hann var drykkjumaður mikill og drakk
eingöngu lampaspritt.
Einu sinni fór kona ein að vanda um við Berg fyrir
drykkjuskap hans, en svo stóð á, að maður hennar
drakk líka lampaspritt og hafði þá nýlega fótbrotnað.
Bergur sagði þá við konuna:
,, Þú þarft ekki að vera að skamma mig.
Það vilja nú stundum detta lappir undan prímusum".


Hermann Jónsson bóndi í Firði var orðlagður kvennamaður.
Einu sinni kom Magnús bóndi á Hofi í Mjóafirði að
Hermanni í einni sæng með konu hans.
Hermann lét sér ekki bilt við verða, en sagði:
,, Ég er nú líklegast fyrir þér, Magnús minn".


Guðrún var í heimsókn hjá Ástu, vinkonu sinni.
,, Hugsaðu þér!" sagði Ásta. ,, Hann Bjarni Guðmundsson
var að fara héðan út, og hann var að biðja mín".
,, Þessu get ég trúað", sagði Guðrún. ,, Ég sá,
að það var talsvert í honum".

                                         Góða nótt.Sleeping


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Góða nótt elsku Milla mín

Róslín A. Valdemarsdóttir, 16.3.2008 kl. 21:02

2 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Góða nótt

Guðborg Eyjólfsdóttir, 16.3.2008 kl. 21:35

3 Smámynd: Ragnheiður

Hahahaha las þennan í miðið fyrir húsbóndann minn og hann skellihló að þessu.

Ragnheiður , 16.3.2008 kl. 21:56

4 Smámynd: Sturla Snorrason

Takk fyrir að kíkja á mitt blogg, góða nótt.

Sturla Snorrason, 16.3.2008 kl. 23:01

5 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Takk fyrir að vera til

Ía Jóhannsdóttir, 16.3.2008 kl. 23:47

6 Smámynd: Tiger

 Smiley Sunglasses Ómæ.. endalaus töffari hann Hermann. "Ég er nú líklegast fyrir þér, Magnús minn" .. alger snilld. Hahaha.. Góðar sögur og alltaf gaman að kíkja inn á gaflinn hjá hinum ýmsu sögupersónum sem þú sendir okkur, takk fyrir mig skottið mitt og eigðu yndislega viku framundan!





Tiger, 17.3.2008 kl. 02:46

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Góðan daginn Hallgerður mín, Huld kom með þetta nafn ljótuna,
hafði heyrt þetta einhversstaðar, að því að maður lítur svo yndislega út eftir viku snýtingar eða svo.
                                        Knús inn í daginn.
                                           Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.3.2008 kl. 09:51

8 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Sömuleiðis Tiger míó. Eigðu góða páskahelgi með þínum.
                           Kveðja Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.3.2008 kl. 09:54

9 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Ég segi bara góðan daginn á línuna, og takk fyrir mig.
                        Knús á ykkur öll.
                             Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.3.2008 kl. 09:57

10 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Góðan daginn Milla mín þú ert dásamleg.

Kristín Katla Árnadóttir, 17.3.2008 kl. 11:29

11 Smámynd: Huld S. Ringsted

Góðan eftirmiðdag Milla mín, ég sé að það er mikið að gera hjá þér þessa dagana!

Huld S. Ringsted, 17.3.2008 kl. 16:50

12 Smámynd: Huld S. Ringsted

P.S. Láttu þér batna, þessi pest er hundleiðinleg

Huld S. Ringsted, 17.3.2008 kl. 16:52

13 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Skrítið að hafa ekki lesið neitt frá þér í dag Milla, sendi þér knús

Róslín A. Valdemarsdóttir, 17.3.2008 kl. 19:35

14 Smámynd: M

Batni þér sem fyrst

M, 17.3.2008 kl. 20:44

15 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Þið eruð yndislegar allar saman.
Knús til ykkar allra. Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 17.3.2008 kl. 21:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.